Fara í efni
Blöndulína 3

Ræða kynferðisofbeldi í samböndum unglinga

Frá fyrsta ungmennaþingi Barnaheilla sem haldið var í byrjun febrúar í Hljómahöll í Reykjanesbæ. Þar komu saman rúmlega 80 nemendur af fyrsta og öðru ári Fjölbrautaskóla Suðurnesja og úr efstu bekkjum allra grunnskóla á svæðinu.

Fjallað verður um kynferðisofbeldi í nánum samböndum unglinga, á ungmennaþingi Barnaheilla sem verður haldið á morgun, fimmtudaginn 5. mars, í Menningarhúsinu Hofi á Akureyri., frá kl. 09:00 til 11:30.

Þátttakendur eru um 40 alls, úr efstu bekkjum Brekkuskóla, Glerárskóla, Naustaskóla, Oddeyrarskóla og Síðuskóla og 16-18 ára nemendur úr Menntaskólanum á Akureyri. „Markmið þeirra er að fá innsýn í upplifun og viðhorf unga fólksins og hverju þau vilja koma á framfæri varðandi ofbeldi í nánum samböndum,“ segir í tilkynningu frá Barnaheillum.

„Barnaheill vilja kanna hvort ungmenni þekki einkenni óheilbrigðra sambanda og ofbeldis, og viti hvert þau geta leitað eftir aðstoð. Einnig verður leitast við að heyra hvaða mögulegar lausnir þau sjái sjálf til að minnka slíkt ofbeldi.“

Barnaheill segja mikinn lærdóm falinn í þátttöku í ungmennaþingi og „dýrmætt tækifæri fyrir ungt fólk til að tjá skoðanir sínar og væntingar. Barnaheill munu taka saman upplýsingar og niðurstöður frá þingunum og nota þær til að þrýsta á ráðafólk að beita sér fyrir úrbótum og fjölgun úrræða fyrir ungmenni.“

Mikið um kynferðisofbeldi

Málefnið er afar mikilvægt, segja Barnaheill, því of mikið er um kynferðisofbeldi gegn ungu fólki og milli ungs fólks samkvæmt þeim skýrslum sem liggja fyrir:

  • Ársskýrsla Stígamóta 2024: 68,6% af þeim sem komu til Stígamóta í fyrsta sinn voru undir 18 ára þegar brotið átti sér stað og 34,6% undir 10 ára.
  • Tilkynningar um kynferðisbrot til lögreglu árið 2025 voru 133 varðandi kynferðisbrot gegn barni og 51 um barnaníð (myndefni).
  • Niðurstöður úr Íslensku Æskulýðsrannsókninni 2025 þar sem rúmlega 600 ungmenni í 8.-10. bekk sögðu annan ungling hafa haft við þau samfarir eða munnmök gegn vilja þeirra.

Ungmennaþingið á Akureyri er það þriðja af sex Barnaheill halda um þessar mundir. Samtökin fengu styrk frá dómsmálaráðuneyti til að halda ungmennaþing á sex stöðum á landinu í febrúar og mars. Fyrsta þingin voru á Suðurnesjum og í Hafnarfirði, það þriðja er á Akureyri á morgun, og síðustu þrjú ungmennaþingin verða svo haldin 16. mars á Ísafirði, 24. mars á Egilsstöðum, og 26. mars á Selfossi.