Björk og Ágúst Már efst af GA kylfingum
Björk Hannesdóttir og Ágúst Már Þorvaldsson léku best af kylfingunum þrettán úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) sem taka þátt í Íslandsmótinu í golfi sem hófst á Korpúlfsstaðavelli í Reykjavík í dag. Björk er jöfn fleiri kylfingum í 14. sæti í kvennaflokki eftir fyrsta keppnisdag og Ágúst Már er jafn öðrum í 19. sæti í karlaflokki. 40 keppendur eru í kvennaflokki og 92 í karlaflokki og verður þeim fækkað um helming eftir annan keppnisdag á morgun, föstudag.
Í kvennaflokki lék Elsa Maren Steinarsdóttir úr Golfklúbbnum Leyni á Akranesi best á fyrsta keppnisdegi. Hún lék hringinn á 67 höggum, eða fjórum höggum undir pari vallarins. Fjórfaldi Íslandsmeistarinn Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Golfklúbbnum Keili er í öðru sæti en hún lék á 70 höggum.
Skor og staða hjá GA-keppendum í kvennaflokki eftir fyrsta keppnisdaginn:
- Björk Hannesdóttir lék á 77 höggum og er jöfn tveimur öðrum í 14. sæti
- Lilja Maren Jónsdóttir lék á 78 höggum og er jöfn fimm öðrum í 17. sæti
- Andrea Ýr Ásmundsdóttir lék á 80 höggum og er í 25. sæti

Björk fékk fugl og fimm skolla snemma á fyrsta keppnisdegi en fékk síðan átta pör í röð áður en tveir skollar komu í bláendann.
Í karlaflokki lék ríkjandi Íslandsmeistari, Dagbjartur Sigurbrandsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur (GR), manna best og lauk leik á 66 höggum, eða 5 höggum undir pari vallarins. Félagar hans úr GR, Arnór Tjörvi Þórsson og Tómas Eiríksson Hjaltested, komu næstir á 68 höggum.
Skor og staða hjá GA-keppendum í karlaflokki eftir fyrsta keppnisdaginn:
- Ágúst Már Þorvaldsson lék á 73 höggum og er jafn sex öðrum í 19. sæti
- Barri Björgvinsson lék á 75 höggum og er jafn sjö öðrum í 31. sæti
- Arnar Freyr Viðarsson lék á 76 höggum og er jafn átta öðrum í 39. sæti
- Óskar Páll Valsson, Mikael Máni Sigurðsson og Patrekur Máni Ævarsson léku á 78 höggum og eru jafnir sjö öðrum í 51. sæti
- Valur Snær Guðmundsson og Veigar Heiðarsson léku á 79 höggum og eru jafnir sex öðrum í 62. sæti
- Maron Björgvinsson lék á 83 höggum og er jafn fjórum öðrum í 84. sæti
- Hafsteinn Thor Guðmundsson lék á 84 höggum og er í 88. sæti

Ágúst Már lék stöðugt golf á fyrsta keppnisdegi. Fjórtán pör, einn fugl og þrír skollar.
Kylfingarnir hefja leik á öðrum keppnisdegi snemma föstudags og annað kvöld kemur síðan í ljós hvaða kylfingar komast gegnum niðurskurðinn og leika seinni keppnisdagana tvo um helgina. Fylgjast má með stöðunni í mótinu í rauntíma á þessari síðu og RUV mun einnig sýna beint frá mótinu síðdegis á morgun.