Fara í efni
Blak

Þór/KA spilar í dag – karlaliðin á sunnudag

Þrír leikir eru á dagskrá Akureyrarliðanna í Bestu deildunum í knattspyrnu á næstu dögum. Þór/KA á leik í dag, mánudag, en karlaliðin spila á sunnudaginn. Þór/KA tekur á móti Þrótti í dag, Þór tekur á móti Val á sunnudag og sama dag sækir KA Stjörnuna heim.

MÁNUDAGUR 22. JÚNÍ - fótbolti

Fyrri hluta Bestu deildar kvenna er að ljúka, komið að 9. umferð mótsins og Þór/KA á heima leik í dag, mánudag. Mótherjar dagsins eru Þróttarar undir stjórn fyrrum þjálfara Þórs/KA, Jóhanns Kristins Gunnarssonar.

  • Besta deild kvenna í knattspyrnu, 9. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 18
    Þór/KA - Þróttur

Þróttur er í 5. sæti deildarinnar að loknum átta umferðum með 13 stig, en Þór/KA situr í 10. sætinu með þrjú stig. Bæði lið gerðu markalaust jafntefli í síðustu umferð, Þór/KA á útivelli gegn Val og Þróttur á heimavelli gegn ÍBV. 

SUNNUDAGUR 28. JÚNÍ - fótbolti

Keppni í Bestu deildinni, fyrir tvískiptingu, er nú um það bil hálfnuð. Flest liðin hafa spila 11 leiki, en sum þó reyndar 12 leiki þar sem stöku leikjum hefur verið flýtt vegna þátttöku liða í Evrópukeppnum, en nú er komið að seinni umferðinni. Þór og Valur mætast á Akureyri á sunnudag, en þessi lið mættust á heimavelli Vals í fyrstu umferð mótsins í apríl. Þór hafði þar betur, 2-1.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 12. umferð
    Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17.
    Þór - Valur

Valur er í 5. sæti deildarinnar með 16 stig að loknum 12 leikjum, en Þór er í 11. sætinu mað sjö stig. Bæði lið gerðu jafntefli í leikjum sínum um liðna helgi, Valur heima gegn Keflavik og Þór úti gegn FH.

- - -

KA og Stjarnan mættust í fyrstu umferð mótsins á Akureyri í apríl og höfðu Stjörnumenn þar betur, 3-2. Bæði lið töpuðu leikjum sínum í 11. umferðinni um liðna helgi. Stjarnan tapaði 2-1 fyrir ÍBV í Eyjum og KA tapaði 3-1 fyrir Breiðabliki á Kópavogsvelli.

  • Besta deild karla í knattspyrnu, 12. umferð
    Stjörnuvöllur (Samsung-völlurinn í Garðabæ), kl. 17
    Stjarnan - KA

Stjarnan er í 8. sæti deildarinnar með 11 stig úr 12 leikjum, en KA í 10. sætinu með tíu stig að loknum 11 leikjum.