Fara í efni
Blak

Ætlum að vinna aftur og skilja okkur frá botninum

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA: Við vitum að það er örstutt upp, og það er örstutt niður, og mitt markmið er að það verði önnur lið en KA sem fari á taugum. Myndir: Ármann Hinrik og Skapti Hallgrímsson

Hallgrímur Jónasson þjálfari KA hlakkar mikið til þess að takast á við Þórsara í nágrannaslagnum á nýja KA-vellinum í Bestu deild karla í fótbolta annað kvöld en Akureyrarliðin mætast þar klukkan 19.15 í síðasta leiknum í sextándu umferð deildarinnar.

KA mætir til leiks í tíunda eða ellefta sæti deildarinnar, með 14 stig, og Þórsarar eru í tólfta og neðsta sætinu með 11 stig og myndu því ná grönnum sínum að stigum með sigri í leiknum.

Hallgrímur var leikmaður KA frá 2018 og hefur þjálfað liðið frá 2022 en mætti samt Þór í fyrsta skipti í alvöru deildarleik þegar liðin áttust við á Þórsvellinum í vor. KA hafði betur, 1-0, með marki Hallgríms Mars Steingrímssonar rétt fyrir leikslok. Hallgrímur þjálfari sagði í spjalli við akureyri.net eftir æfingu KA-liðsins í dag að það væri vissulega allt öðruvísi að mæta Þór en öðrum liðum.

Stuðningsmenn KA í fyrri leiknum við Þór, á nýja gervigrasvellinum á Þórssvæðinu í byrjun maí.

Byrjaði þremur vikum fyrir leik

„Þú byrjar að finna svakalegan áhuga í bænum löngu fyrir leikinn. Áður en við mættum þeim í fyrri leiknum í vor byrjuðu vangavelturnar minnst þremur vikum fyrir leik. Hversu mörgum verður hleypt inn á völlinn, hvar verður spilað, og fólk hafði áhyggjur af því að fá ekki miða á leikinn. Þórsararnir stóðu sig vel, það var fullt af fólki á vellinum hjá þeim, og það er að takast aftur núna. Það verða um tvö þúsund manns á þessum leik og það er ótrúlega gaman.

Þessir leikir eru öðruvísi, viðureignir KA og Þórs eru án efa með stærstu „derby-leikjunum“ á Íslandi því það er svo mikill rígur á milli félaganna. Þú vilt eiga montréttinn í bænum og fyrir okkur KA-fólk var æðislegt að okkur skyldi takast að vinna þá síðast. Það var alvöruleikur og stutt á milli, og þannig verður þetta örugglega líka á morgun.

Á sama tíma munum við spila í fyrsta skipti á nýjum og frábærum velli með frábærri stúku og aðstöðu, þannig að allt í kringum þennan leik er ótrúlega spennandi.“

Frábært að þetta skyldi takast

Frá því þið mættuð Þórsurum í vor, var ekki markmiðið strax á þá leið að þið mynduð spila seinni leikinn á nýja vellinum?

„Jú, það er búið að vera markmið hjá Sævari og stjórninni lengi, eftir að við sáum dagsetninguna á seinni leiknum við Þór, að ná að spila fyrsta leikinn á vellinum á móti þeim. Það er frábært að það skyldi takast og Sævar hefur hrósað verktökunum sem eru að reisa mannvirkin á svæðinu fyrir að þetta skyldi vera möguleiki.

Við æfðum á vellinum í dag og síðustu daga og aðstaðan er frábær. Við höfum annars alltaf æft á hinum vellinum, vegna þess að leikirnir hafa farið fram á honum, og vatnskerfið var ekki komið í gang á nýja vellinum fyrr en í síðustu viku. En við höfum æft á honum alla þessa viku til þess að venjast honum, þannig að hann er ekki lengur alveg glænýr fyrir okkur.“

Hallgrímur Mar Steingrímsson gerir eina mark fyrri leiks Akureyrarfélaganna úr vítaspyrnu þegar lítið var eftir.

Skemmtilegt krydd fyrir fótboltann

Umgjörðin er greinilega orðin mun betri en á hinum vellinum ykkar.

„Já, þetta er ótrúlega flott. Nú verða KA-aðdáendur á báðum langhliðum vallarins og Þórs-aðdáendur á annarri skammhliðinni, þannig að það verður alvöru andrúmsloft á leiknum. Það sem var líka gaman á Þórsvellinum í vor var að þá voru alls konar söngvar í gangi hjá báðum hópum, meira en að það væri bara kallað „Áfram KA“. Jafnvel einhver skot á milli hópanna og það er greinilegt að áhorfendakúltúrinn á Íslandi er að færast á aðeins hærra og skemmtilegra stig.

Ég hef mjög gaman af þessu öllu saman á meðan það er innan skynsemismarka og þetta er skemmtilegt krydd fyrir fótboltann á Íslandi.“

Þú vilt alltaf eiga montréttinn

Þó þú hafir fyrst mætt Þór í deildarleik í vor þá hefur þú væntanlega fundið fyrir rígnum á milli KA og Þórs frá fyrsta degi í röðum KA fyrir átta árum?

„Já, ég þekkti þetta vel frá því ég spilaði í þrjú ár með Þór sem unglingur og á hverjum einasta vetri síðan ég kom hefur verið spilað tvisvar gegn Þór. Leikur gegn Þór í Kjarnafæðismóti er nánast eins og deildarleikur vegna spenningsins í kringum hann, þótt leikmenn séu ekki komnir í form og úrslitin skipti ekki öllu máli.

Samt finnur maður strax spennuna og þú vilt alltaf eiga montréttinn. Okkur tókst að ná honum síðast og við ætlum okkur að vinna þá aftur og skilja okkur aðeins frá botninum í deildinni.“

Úr fyrri leik Þórs og KA í sumar. „Þessir leikir eru öðruvísi, viðureignir KA og Þórs eru án efa með stærstu „derby-leikjunum“ á Íslandi því það er svo mikill rígur á milli félaganna,“ segir Hallgrímur Jónasson.

Önnur lið en KA fari á taugum

Liðin eru í krítískri stöðu, Þórsarar eru neðstir og þið gætuð verið næstneðstir þegar kemur að leiknum, ef FH vinnur sinn leik í kvöld. Hvort horfið þið á leikinn sem hreinan fallbaráttuleik eða sem lið í því að koma ykkur betur inn í baráttuna um sjötta sætið í deildinni?

„Ég reyni alltaf að spá mest í hvernig staðan er á liðinu og hvernig frammistaðan er. Við lentum í erfiðum kafla í sumar þar sem við töpuðum sex leikjum í röð. Samt fannst mér frammistaðan í síðasta tapleiknum, gegn Víkingi, vera frábær og það hafi verið ósanngjarnt að tapa þar á marki á 94. mínútu.

Svo unnum við ÍA í hörkuleik, þar sem við komum til baka, og það var ágætlega jákvætt að fara til Vestmannaeyja og ná þar í stig. Það var dálítið svekkelsi að vinna ekki í lokin, manni fleiri, eftir að hafa verið yfir í leiknum.

En frammistaðan er núna farin að gefa okkur stig, og það er það sem ég horfi í. Það að geta haldið áfram að vaxa og sýna góða frammistöðu þrátt fyrir að vera meiðslahrjáðir, skiptir mestu máli. Að geta haldið haus og áttað þig á því hvenær þú stendur þig vel þó það skili ekki úrslitum, rétt eins og það er ekki alltaf allt fullkomið þegar þú vinnur leiki.

Þannig að við höldum einbeitingu á því að vinna í okkar hlutum, verða betri í því sem við gerum, og höfum trú á að það komi okkur að lokum út úr þessum vandræðum. Svo vitum við að það er örstutt upp, og það er örstutt niður, og mitt markmið er að það verði önnur lið en KA sem fari á taugum.“

Sveinn Margeir Hauksson skorar með skalla í sigurleik KA á ÍA á dögunum. Hann lék nokkra leiki með sínum gömlu félögum sem lánsmaður frá Víkingi en var kallaður til baka og lék einmitt gegn Þór um síðustu helgi.

Reikna með tveimur á morgun

KA hefur glímt við mikil meiðsli og á þeim lista hafa verið Ásgeir Sigurgeirsson, Hrannar Björn Steingrímsson, Rodrigo Gomes, Jóan Símun Edmundsson, Oliver Heiðarsson, Diego Montiel, Samuel Karl Kroon og Steinþór Már Auðunsson markvörður. Þá verða Birgir Baldvinsson og Jeppe Pedersen í banni í leiknum gegn Þór á morgun vegna gulra spjalda. Hallgrímur sagði að staðan á hópnum væri samt þokkaleg.

„Við fengum tvo nýja menn inn fyrir síðasta leik, André Römer og Adam Ægi Pálsson, og ég reikna með að fá á morgun tvo aðra inn í hópinn sem ekki hafa verið með okkur að undanförnu. Staðan er aðeins að batna hvað þetta varðar en það eru nokkrir lengi frá, Ásgeir Sigurgeirsson og Hrannar Björn Steingrímsson eru byrjaðir að æfa en hafa ekkert spilað í ár og það eru enn nokkrar vikur í þá.

Við erum með Steinþór markvörð handarbrotinn og Oliver er fótbrotinn, Rodrigo sleit krossband, þannig að við erum með marga menn sem eru fjarverandi í rosalega langan tíma.“

Þeir eru nýkomnir til KA; André Römer til vinstri og Adam Ægi Pálsson.

Ánægðir með nýjustu mennina

„En staðan er bara svona og stjórnin er búin að gera vel, hún sótti tvo leikmenn út af meiðslunum og við erum ánægðir með þá. Þetta eru menn sem hafa spilað á háu getustigi og komu báðir vel inn í leikinn gegn ÍBV. Römer hefur þrisvar orðið danskur meistari og er því með gríðarlega reynslu, hann er að koma úr undirbúningstímabili og á meira inni, verður vonandi kominn í sitt besta form eftir tvær til þrjár vikur, en hann var mjög flottur fyrir okkur í Eyjum.

Svo er spennandi að sjá hvernig Adam reynist, það sást á öllum tölum úr leiknum við ÍBV að hann er í hörkuformi og hljóp einna mest í liðinu af hárri ákefð allan tímann. Við ættum að geta fengið bestu útgáfuna af honum mjög fljótlega. Við þurfum að bíða aðeins með André en hann er á það háu getustigi að hann er nú þegar farinn að gefa okkur heilmikið. Mjög svipað og Aron Einar gerði hjá Þór í síðasta leik. Hann og André eru leikmenn sem gefa af sér mikla reynslu, halda stöðum vel og eru klókir fótboltamenn.“

Aron breytir engu fyrir skipulagið

Talandi um Aron Einar Gunnarsson, þá er hann farinn strax aftur frá Þór. Hversu mikil áhrif hefur það á Þórsliðið fyrir leikinn gegn ykkur?

„Aron er frábær leikmaður og með mikla reynslu en var ekki í toppformi þegar hann lék með Þór gegn Víkingi og bað um skiptingu eftir rúmar 60 mínútur þegar staðan var 0-0. Hann gaf þeim samt mjög mikið í varnarleiknum. Víkingar voru vissulega ekki með sitt sterkasta lið en sigurinn var samt góður fyrir Þórsara og gaf þeim mikið búst. Þeir fengu sigurinn og það var vel gert hjá þeim.

En hvort sem Aron er farinn eða ekki þá breytir það engu fyrir okkar skipulag í þessum leik. Þórsarar spiluðu nákvæmlega eins taktík með Aron í liðinu og þeir gerðu áður. Ef hann er farinn þá verður það held ég fyrst og fremst nærvera hans sem þeir munu sakna. Hann hefði gert meira fyrir þá með því að vera með þeim í nokkrar vikur og komast í fullt form,“ sagði Hallgrímur Jónasson þjálfari KA.