Fara í efni
Baldvin Þór Magnússon

Níu SA Víkingar með landsliðinu í Búlgaríu

Mynd af vef Íshokkísambands Íslands.

A-landslið karla í íshokkí hélt til Búlgaríu á föstudag til þátttöku í Heimsmeistaramótinu, 2. deild B. Höfuðborgin Sofia er áfangastaðurinn, en þar spilar íslenska liðið fimm leiki á sjö dögum.

Af 22 leikmönnum í A-landsliðinu eru níu núverandi leikmenn SA Víkinga, auk þriggja Akureyringa sem hafa verið eða voru á mála hjá erlendum félagsliðum og fyrrum leikmanns SA sem nú spilar í Reykjavík. Þá eru þrír í starfsliði landsliðsins frá Skautafélagi Akureyrar. Af 28 manna hópi eru því samtals 16 núverandi og fyrrverandi leikmenn, þjálfarar og sjálfboðaliðar frá Skautafélagi Akureyrar.

Fyrsti leikur liðsins er gegn landsliði Tævan á morgun, annan í páskum.  Aðrir leikir íslenska liðsins eru gegn Nýja-Sjálandi 7. apríl, Kyrgystan 9. apríl, Búlgaríu 11. apríl, en lokaleikur liðsins er 12. apríl.

Mögulegt verður að fylgjast með öllum leikjum liðsins á streymisveitu Íshokkísambands Íslands á vefslóðinni icehockeyiceland.tv.

Leikjadagskrá mótsins

Landsliðshópurinn:

MARKMENN
Helgi Ívarsson
Róbert Steingrímsson

VARNARMENN
Arnar Helgi Kristjánsson
Atli Sveinsson
Gunnar Arason
Ormur Jónsson
Róbert Pálsson
Viktor Mojzyszek
Þorgils Eggertsson

SÓKNARMENN
Alex Máni Sveinsson
Andri Már Mikaelsson
Bjarmi Kristjánsson
Gunnlaugur þorsteinsson
Hákon Martein Magnússon
Heidar Gauti Jóhannsson
Hektor Hrólfsson
Jóhann Már Leifsson
Kári Arnarsson
Níels þór Hafsteinsson
Styrmir Maack
Ólafur Baldvin Björgvinsson
Unnar Hafberg Rúnarsson

STARFSMENN
Martin Struzinsky, aðalþjálfari
Rúnar F. Rúnarsson, aðstoðarþjálfari
Robin Danielsson, markmanns - og videoþjálfari
Marcin Mojzyszek, tækjastjóri
Jóhann Þór Jónsson, sjúkraþjálfari
Kristján Sturluson, liðsstjóri

Leikmenn SA Víkinga í hópnum eru: Róbert markvörður, Arnar Helgi, Atli, Ormur, Andri Már, Bjarmi, Heiðar Gauti, Jóhann Már og Unnar Hafberg. Auk þeirra hafa Akureyringarnir Helgi Ívarsson, Gunnar Arason og Ólafur Baldvin Björgvinsson leikið erlendis og Alex Máni Sveinsson í Reykjavík. Í starfsliði landsliðsins eru að auki þrír frá SA, þeir Rúnar Freyr, Jóhann Þór og Kristján.