Fara í efni
Alfreð Gíslason

Dagur Árni Heimisson kominn heim í KA á ný

Dagur Árni Heimisson og Andri Snær Stefánsson þjálfari KA. Mynd af vef félagsins.

Handboltamaðurinn Dagur Árni Heimisson er genginn til liðs við KA á ný eftir eins árs dvöl hjá Val í Reykjavík. Greint er frá því á samfélagsmiðlum KA í dag að Dagur Árni hafi skrifað undir tveggja ára samning við uppeldisfélagið. 

Dagur, sem verður tvítugur í haust,  getur bæði leikið sem leikstjórnandi og skytta „er hluti af hinum ógnarsterka 2006 árgangi KA en strákarnir töpuðu ekki leik í rúmlega tvö ár á yngriflokkaferli sínum er þeir hömpuðu öllum þeim titlum sem í boði voru á Íslandi áður en þeir urðu Partille Cup meistarar en þar lögðu þeir mörg af sterkustu liðum Norðurlandanna,“ segir á vef KA.

Dagur er einn allra efnilegasti leikmaður landsins og hefur árum saman verið lykilmaður í yngri landsliðunum. Meiðsli settu strik í reikninginn í vetur og hann var því ekki í eins stóru hlutverki hjá Val og gert var ráð fyrir, en það er mikill styrkur fyrir KA að hann snúi heim. 

Fréttin á vef KA í heild: Dagur Árni snýr aftur heim!

  • Markvörðurinn Bruno Bernat, sem er 24 ára, skrifaði í vikunni undir nýjan samning til tveggja ára við KA. Þetta var tilkynnt á vef félagsins í gær og stutt er síðan greint var frá því að Arnór Ísak Haddsson hefði gert nýjan samning til tveggja ára. Nánar hér um Bruno og hér um Arnór Ísak.