Þór og KA í eldlínunni og Landsmóti lýkur
Keppni í Bestu deild karla í knattspyrnu, fyrir tvískiptingu, er nú um það bil hálfnuð. Flest liðin hafa spila 11 leiki, en sum þó reyndar fleiri þar sem stöku leikjum hefur verið flýtt vegna þátttöku liða í Evrópukeppnum, en nú er komið að seinni umferðinni. Þór leikur á heimavelli í dag en KA fyrir sunnan.
Í dag lýkur Landsmóti UMFÍ 50+ og verður meirihluti keppnisgreina og dagskrár í Hrafnagilshverfinu í Eyjafjarðarsveit, auk púttkeppni að Þverá þar skammt frá.
Leikið í Bestu deild karla
Þór og Valur mætast á Akureyri í dag, en þessi lið mættust á heimavelli Vals í fyrstu umferð mótsins í apríl. Þór hafði þar betur, 2-1, sem er annar af tveimur sigurleikjum liðsins í fyrri hluta mótsins.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 12. umferð
Þórsvöllur (VÍS-völlurinn, gervigrasvöllur á Ásnum) kl. 17.
Þór - Valur
Valur er í 5. sæti deildarinnar með 16 stig að loknum 12 leikjum, en Þór er í 11. sætinu með sjö stig. Bæði lið gerðu jafntefli í leikjum sínum um liðna helgi, Valur heima gegn Keflavík og Þór úti gegn FH. Leikir beggja liða enduðu 1-1.
- - -
KA og Stjarnan mættust í fyrstu umferð mótsins á Akureyri í apríl og höfðu Stjörnumenn þar betur, 3-2. Bæði lið töpuðu leikjum sínum í 11. umferðinni um liðna helgi. Stjarnan tapaði 2-1 fyrir ÍBV í Eyjum og KA tapaði 3-1 fyrir Breiðabliki á Kópavogsvelli.
- Besta deild karla í knattspyrnu, 12. umferð
Stjörnuvöllur (Samsung-völlurinn í Garðabæ), kl. 17
Stjarnan - KA
Stjarnan er í 8. sæti deildarinnar með 11 stig úr 12 leikjum, en KA í 10. sætinu með tíu stig að loknum 11 leikjum.
Lokadagur Landsmóts 50+
Keppnisgreinar dagsins á Landsmóti UMFÍ 50+ eru pútt á golflvellinum að Þverá, frjálsar íþróttir (inni) í íþróttahúsinu Hrafnagili, frisbígolf á frisbígolfvellinum að Hrafnagili, skák í Grunnskólanum Hrafnagili, bogfimi í Hrafnagilshverfinu, stígvélakast á íþróttavellinum Hrafnagili og pönnukökubakstur í Hrafnagilshverfinu. Auk þess verður fjölbreytt afþreying og skemmtun í boði undir heitinu fjölskyldufjör, svo sem fjölskylduhlaup, pokavarp, göngufótbolti, pútt, frisbígolf, bogfimi og petanque.
