Baldvin á EM: 13. sæti og Íslandsmet í 10 km
Baldvin Þór Magnússon úr Ungmennafélagi Akureyrar varð í 13. sæti í 10 kílómetra hlaupi á nýju Íslandsmeti á Evrópumótinu í frjálsíþróttum í Birmingham á Englandi í kvöld. Baldvin hljóp á 28 mínútum, 25,67 sekúndum og aðeins munaði sjónarmun á honum og þeim sem varð í 12. sæti. Baldvin hafði áður best hlaupið á 28 mín. 57,17 sek., árið 2023, en Íslandsmet Hlyns Andréssonar frá 2021 var 28:36,80 mín. Það setti hann einni á vellinum í Birmingham.
Baldvin segir í samtali við RÚV að hlaupið hafi þróast eins og hann bjóst við. Hann segist ekki hafa náð að undirbúa sig eins mikið og hann vildi vegna meiðsla á kálfa en þó nóg til að keppa.
Svíinn Andreas Almgren varð Evrópumeistari. Hann kom langfyrstur í mark á 27:23,44 mínútum og setti Evrópumeistaramótsmet. Keppendur í 10 km hlaupinu voru 25.
„Ég er bara mjög sáttur við þetta. Þetta var svona nálægt því að mjög, mjög gott. Það var skrýtin upplifun að vera í svona taktísku 10 þúsund metra hlaupi,“ sagði Baldvin við RÚV eftir hlaupið. „Það voru klárlega tímapunktar sem við vorum að fara allt of hratt. Ég vissi að það var enginn að fara að halda þessu allan tímann. Maður þurfti bara að hanga í því, vitandi að einhvern tímann myndi hægja á hraðanum. Ég bjóst ekki við að það myndi hægjast svona mikið á. Við vorum næstum byrjaðir að labba þegar það voru svona þrír kílómetrar eftir. Svo vorum við hringaðir af Almgren þegar við vorum farnir að labba. Þá byrjuðum við aftur að keppa,“ sagði Baldvin.
Smellið hér – eða á myndina fyrir neðan – til að sjá viðtalið við RÚV og neðar á síðunni má sjá glæsilegan endasprett hans og skemmtilega lýsingu Sigurbjörns Árna Arngrímssonar.
