Fara í efni
Alþingiskosningar 2024

Golf: Arnar Freyr varð Íslandsmeistari

Frá vinstri: Barri Björgvinsson úr GA sem varð í þriðja sæti í flokki drengja 15-16 ára, Íslandsmeistarinn Arnar Freyr Viðarsson úr GA og Bjarki Steinn Ottósson úr GR, sem varð í öðru sæti. Mynd: golf.is.

Arnar Freyr Viðarsson úr Golfklúbbi Akureyrar (GA) bar sigur úr býtum í flokki drengja 15-16 ára á Íslandsmóti unglinga í holukeppni um síðustu helgi. Samtals voru 17 keppendur frá GA á Íslandsmótinu og stóðu sig með miklum sóma.

  • Andri Mikael Steindórsson keppti í flokki drengja 12 ára og yngri. Hann varð í 6. sæti af 24 í höggleiknum og komst síðan alla leið í úrslitaleikinn í holukeppninni en tapaði þar og fékk því silfurverðlaunin í flokknum.
  • Fjórir keppendur frá GA voru í flokki drengja 13-14 ára, þeir Bjarki Þór Elíasson, Jóakim Elvin Sigvaldason, Kristófer Áki Aðalsteinsson og Sesar Blær Gautason. Fyrst var leikinn höggleikur og átta efstu komust áfram í 8-manna úrslit. Jóakim Elvin og Sesar Blær komust ekki áfram en Kristófer Áki Aðalsteinsson komst í undanúrslit. Þar beið hann lægri hlut og sömuleiðis í viðureigninni um bronsið og varð að sætta sig við fjórða sætið. Bjarki Þór var óheppinn, hann var jafn í 1. sæti eftir höggleikinn en tapaði naumlega gegn Bjarti Ægissyni úr GK í 8-manna úrslitunum. Bjartur varð síðan Íslandsmeistari í flokknum.
  • Embla Sigrún Arnsteinsdóttir keppti í flokki stúlkna 13-14 ára. Hún varð í 6. sæti í höggleiknum og komst þar með í 8-manna úrslitin en tapaði sinni viðureign þar.
  • Sextán keppendur voru í flokki drengja 15-16 ára og þar átti GA fjóra fulltrúa. Auk Arnars Freys voru það Ágúst Már Þorvaldsson, Barri Björgvinsson og Egill Örn Jónsson. Egill Örn féll úr leik í 16-manna úrslitum og Ágúst Már í 8-manna úrslitum en Barri komst í undanúrslitin ásamt Arnari Frey og þar léku þeir hvor gegn öðrum. Arnar Freyr hafði betur, komst í úrslitaleikinn og landaði Íslandsmeistaratitlinum eftir sigur gegn Birgi Steinari Ottóssyni úr GR. Barri vann viðureign sína um þriðja sætið og fékk bronsverðlaunin.
  • Í flokki stúlkna 17-18 ára kepptu þær Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir og Ragnheiður Svava Björnsdóttir frá GA. Sextán keppendur hófu leik í útsláttarkeppninni og þar mættust Bryndís Eva og Ragnheiður Svava. Bryndís Eva hafði þar betur. Björk og Lilja Maren komust einnig áfram í 8-manna úrslitin og þar unnu stöllurnar þrjár sínar viðureignir. GA átti því þrjá af fjórum keppendum í undanúrslitunum. Björk og Bryndís mættust þar og Björk hafði betur í bráðabana. Lilja Maren tapaði fyrir Pamelu Ósk Hjaltadóttur úr GKG í undanúrslitunum og fékk því silfrið. Björk og Pamela léku til úrslita og þar hafði Pamela betur og tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn. Bryndís Eva lagði Lilju Maren í bráðabana í viðureign þeirra um bronsverðlaunin.
  • Í flokki drengja 17-18 ára kepptu þeir Hafsteinn Thor Guðmundsson, Maron Björgvinsson og Patrekur Máni Ævarsson. Eins og í hinum eldri flokkunum voru sextán efstu kylfingarnir á stigalistanum með þátttökurétt. Strákarnir úr GA unnu allir viðureign sína í 16-manna úrslitunum en þeir Maron og Patrekur Máni féllu úr leik í 8-manna úrslitum. Hafsteinn Thor komst í undanúrslitin en tapaði viðureign sinni þar. Hann beið einnig lægri hlut í keppninni um bronsverðlaunin og varð að sætta sig við 4. sætið.