Fara í efni
Menning

Uppbygging að Hrauni í minningu Jónasar

Fyrirhuguð er uppbygging að Hrauni í Öxnadal sem hefur það markmið að heiðra minningu þjóðskáldsins, Jónasar Hallgrímssonar. Þetta kemur fram á vef stjórnarráðsins og sagt í samræmi við ályktun Alþingis frá árinu 2017.

Fæðingardagur Jónasar, 16. nóvember, hefur frá 1996 verið tileinkaður íslenskri tungu og minningu hans verið haldið á lofti með ýmsum hætti.

„Framlag Jónasar Hallgrímssonar til íslenskrar menningar verður seint metið að verðleikum. Þrátt fyrir að Jónas hafi aðeins náð 38 ára aldri er ævistarf hans viðamikið og mikilvægt fyrir sögu og menningu þjóðarinnar. Rannsóknir hans m.a. á jarðfræði Íslands og landakortagerð voru frumkvöðlastarf sem skerptu sýn og efldu skilning fólks á náttúru landsins,“ er haft eftir Lilju Dögg Alfreðsdóttur menningar- og viðskiptaráðherra. 

„Það sama má segja um nýyrðasmíði hans. Þá eru ótalin hin fjölmörgu kvæði og ljóð sem Jónas orti og skipa sérstakan sess í huga þjóðarinnar. Með uppbyggingu að Hrauni í Öxnadal mun gefast einstakt tækifæri til að tengja saman náttúru staðarins og arfleifð þjóðskáldsins,“, segir Lilja Dögg Alfreðsdóttir.

Verkefnisstjórn mun hafa það hlutverk að koma með tillögur að metnaðarfullri uppbyggingu á fæðingastað Jónasar Hallgrímssonar. Hana skipa:

Hanna Rósa Sveinsdóttir, tilnefnd af Menningarfélaginu Hrauni í Öxnadal – formaður, Valgerður Gunnarsdóttir, skipuð án tilnefningar – varaformaður, Jónas Þór Jónasson, tilnefndur af Hörgársveit, Dagný Arnarsdóttir, tilnefnd af umhverfis-, orku- og loftslagsráðherra, Vilhelmína Jónsdóttir, tilnefnd af menningar- og viðskiptaráðherra, Hallgrímur Jökull Ámundason, tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðherra, Óttar Kolbeinsson Proppé, tilnefndur af menningar- og viðskiptaráðherra.

Á vef stjórnarráðsins kemur fram að á vorþingi hyggist menningar- og viðskiptaráðherra leggja fram þingsályktunartillögu um uppbyggingu á söguslóðum sem ætlað er að styðja við framþróun og eflingu íslenskra sögustaða sem mikilvægra áfangastaða ferðamanna og gildi þeirra fyrir íslenskan menningararf. Uppbyggingin að Hraun í Öxnadal er liður í þeim áformum.