Fara í efni
Menning

Sýning listaverka í útibúi sparisjóðsins

Sparisjóður Höfðhverfinga býður frá og með næsta fimmtudegi upp á sýningu listaverka ungra og efnilegra listamanna í útibúi sínu við Glerárgötu 36 á Akureyri. Þetta kemur fram í tilkynningu.

„Á sýningunni eru verk listafólks sem tekur þátt í dagatali sparisjóðanna fyrir árið 2024. Hugmyndin á bak við dagatalið er að kynna ungt og efnilegt listafólk sem býr á landsbyggðinni. Hver einstaklingur fær einn mánuð í dagatalinu, þar sem hann kynnir sig og sína list.“

Sýningin verður opnuð klukkan 16.00 á fimmtudaginn, 21. desember og þangað eru allir velkomnir. „Sýningin mun standa yfir eitthvað fram á næsta ár, 2024. Ráðgjöf varðandi dagatalið og val á listafólki veitti Arna Guðný Valsdóttir, myndlistarmaður og kennari við listnáms- og hönnunarbraut Verkmenntaskólans á Akureyri.“

Þetta er eitt af fjölmörgum verkefnum á sviði lista og menningar sem Sparisjóðurinn styrkir í nærumhverfi sínu, að því er segir í tilkynningu.

„Hugmyndin á bakvið dagatal sparisjóðana fyrir árið 2024 var að gera ungu og efnilegu listafólki af landsbyggðinni hátt undir höfði. Okkur fannst kjörið að útvíkka hugmyndina enn frekar og slá upp listasýningu í útibúinu okkar að Glerárgötu með verkum listafólksins sem tók þátt í dagatalinu. Við hvetjum alla til að kíkja til okkar á opnunarviðburðinn og skoða sýninguna,“ segir Jón Ingvi Árnason sparisjóðsstjóri sparisjóðs Höfðhverfinga.

Dagatalið má nálgast endurgjaldslaust í útibúum sparisjóðsins.