Fara í efni
Menning

Dansmyndahátíðin Boreal hefst á morgun

Yuliana Palacios stofnandi Boreal hátíðarinnar og verkefnastjóri fyrir miðju. Til vinstri er Jón Haukur Unnarsson, aðstoðarverkefnastjóri og lengst til hægri Arna Valsdóttir sem var í valnefnd hátíðarinnar og hefur veitt listrænan stuðning við uppstillingu. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Fjórða útgáfa dansmyndahátíðarinnar Boreal fer fram á Akureyri 10. - 23. nóvember. Hátíðin leggur undir sig Listagilið þessar tæpu tvær vikur og fara sýningar fram í Listasafninu, Deiglunni og Mjólkurbúðinni. Herlegheitin hefjast á morgun, föstudag, með setningarathöfn og fyrstu sýningum í Ketilhúsi Listasafnsins á Akureyri.

Boreal Screendance Festival miðar að eflingu danslista og margmiðlunar með sérstaka áherslu á alþjóðasamstarf, að því er segir í tilkynningu. Í ár verða sýndar 36 dansmyndir og vídeódansverk vítt og breitt um Listagilið. Nýjung á hátíðinni að þessu sinni er að dansverk verður í fyrsta skipti flutt á sviði fyrir áhorfendur. Þar er á ferð suður-kóreski listamaðurinn Hoyoung Im sem flytur dansgjörninginn EUPHORIA í Deiglunni 16. nóvember. Boreal stendur einnig fyrir samkomum og fögnuðum á sýningartímanum.

Frá Boreal dansmyndahátíðinni á Akureyri í fyrra.

Verkin sem sýnd verða í ár eru eftir listafólk frá 22 löndum og hefur dagskráin aldrei verið fjölbreyttari þegar litið er til fjölda listafólks, fjölbreytni verka og uppruna þeirra.

Mikið púður er lagt í umgjörð hátíðarinnar og að verkin sem tekin eru til sýningar séu sett fram við bestu mögulegu aðstæður hvað varðar hljóð og mynd. Sé miðað við aðsókn síðustu ára hentar Boreal jafnt heimafólki, aðfluttum og ferðamönnum enda alþjóðleg hátíð í anda, eins og það er orðað í tilkynningu. „Allir gestir ættu þannig að geta fundið eitthvað við sitt hæfi enda fjölbreytileiki dansmyndanna gríðarlegur sem endurspeglar vel þann fjölda listafólks allsstaðar að úr heiminum sem tekur þátt.“

Nokkrir gesta Boreal hátíðarinnar á Akureyri á síðasta ári.

Sérstaða verkefnisins er sögð gríðarleg enda eina hátíðin sinnar tegundar sem haldin er árlega hérlendis. „Það er samtímadansarinn og danshöfundurinn Yuliana Palacios sem er stofnandi og verkefnastjóri Boreal. Yuliana er frá Mexíkó en fluttist til Íslands árið 2016 og hefur síðan þá látið að sér kveða í menningarlífinu hérlendis. Hefur hún ýmist sett upp sjálfstæð dans- og gjörningaverk eða unnið í samstarfi við annað listafólk auk þess að sinna kennslu. Síðustu ár hefur Yuliana æ meir fengist við vídeódans og er dansmyndahátíðin Boreal ein birtingarmynd þess.“

Aðstoðarverkefnastjórar hátíðarinnar eru Jón Haukur Unnarsson og Fríða Karlsdóttir.

Boreal hlaut hvatningarverðlaun Eyrarrósarinnar 2021. Þau eru veitt framúrskarandi menningarverkefnum á landsbyggðinni.

  • Samstarfs- og styrktaraðilar Boreal Screendance Festival 2023 eru: SSNE og Uppbyggingarsjóður Norðurlands eystra, Physical Cinema Festival, Prentmet/Oddi, Listasafnið á Akureyri og Gilfélagið/Deiglan.

Instagram: https://www.instagram.com/boreal_akureyri/

Facebook: https://www.facebook.com/borealakureyri

Heimasíða: https://borealak.is/

Viðburður: https://fb.me/e/3Z2btffr0