Fara í efni
Mannlíf

Gamla myndin: veistu hvar þetta er?

Vikulega birtist gömul ljósmynd á Akureyri.net í samstarfi við Minjasafnið á Akureyri. Þetta er 179. gamla myndin frá safninu sem birtist hér og hafa flestar vakið mikil viðbrögð. Fólk sýnir iðulega gömlum myndum gríðarlegan áhuga og Minjasafninu hafa borist fjölmargar ábendingar um nöfn fólks og staðhætti eftir að mynd birtist opinberlega.

Hefurðu hugmynd um hvar mynd dagsins er tekin? Þeir sem kunna að búa yfir upplýsingum um myndina eru hvattir til að senda þær til Minjasafnsins á Akureyri og ritstjórnar Akureyri.net, á netföngin hg@minjasafnid.is og skapti@akureyri.net Athugið að myndin er skorin en neðst í fréttinni sést hún öll.

  • Myndin hér að neðan birtist fyrir viku. Hún er tekin við bæinn Hleiðargarð í Saurbæjarhreppi hinum gamla (sem nú er hluti Eyjafjarðarsveitar. Lesandi kveðst nokkuð viss um að til vinstri á myndinni séu hjónin Sigríður Jóna Jóhannsdóttir og Snorri Hannesson, bændur í Hleiðargarði. Ekki hafa borist ábendingar um hitt fólkið.
  • Til gamans má benda á að mynd númer 39 var einnig frá Hleiðargarði. Smellið hér til að sjá hana. 

Fleiri gamlar myndir frá Minjasafninu á Akureyri er hægt að skoða HÉR