Fara í efni
Fréttir

Tvö alvarleg slys urðu í dag

Tvö alvarleg slys urðu laust eftir hádegi í dag.

Alvarlegt umferðarslys varð á Eyjafjarðabraut eystri, skammt norðan við Laugaland í Eyjafjarðarsveit skömmu eftir kl. 13.00. Tvennt var í bíl sem lenti út af veginum, að því er segir á Facebook síðu lögreglunnar. Rannsókn á tildrögum slyssins stendur yfir og var veginum lokað á meðan.

Þá varð vélsleðaslys á Flateyjardal. Þyrla Landhelgisgæslunnar var kölluð út á mesta forgangi og var hinn slasaði fluttur á Sjúkrahúsið á Akureyri.