Fréttir
Strætó: Leið 5 ekur hefðbundna leið á ný
16.03.2024 kl. 09:15
Ljósmynd: Þorgeir Baldursson
Þriðjudaginn 19. mars fer leið 5 hjá Strætisvögnum Akureyrar aftur sína leið samkvæmt áætlun og hættir að aka um Kristjánshaga eftir tímabundna breytingu á leiðinni vegna framkvæmda í Naustahverfi. Greint er frá þessu á heimasíðu Akureyrarbæjar.
Biðstöðvar sem settar voru upp til bráðabirgða í Kristjánshaga verða þá færðar aftur upp í Kjarnagötu við Jóninnuhaga og Geirþrúðarhaga eins og sést á meðfylgjandi korti.