Fara í efni
Fréttir

KAON gefur göngudeild SAk þrjá meðferðarstóla

Pétur Þór Jónasson, formaður KAON, mátar einn nýju stólanna. Pétur Þór kveðst sjálfur hafa verið reglulegur viðskiptavinur göngudeildar í nokkur ár og hafa því séð hvar skórinn kreppir. Mynd: KAON.
Blóð- og krabbameinsmeðferðum hefur fjölgað mjög á Sjúkrahúsinu á Akureyri á undanförnum árum og stefnir í áframhaldandi fjölgun. Það er meðal annars ástæða þess að Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis afhenti sjúkrahúsinu þrjá meðferðarstóla og hliðarborð að gjöf. Frá þessu er sagt á vef félagsins, kaon.is.
 
Þar er einnig haft eftir Ingu Margréti Skúladóttur, deildarstjóra á almennri göngudeild SAk: „Þessi viðbót er því afar mikilvæg fyrir starfsemina. Þær lyfjameðferðir sem eru gefnar á deildinni eru mjög mismunandi langar, allt frá einni klukkustund og upp í átta klukkustundir og því er afar mikilvægt að hafa góða stóla. Stólarnir sem félagið færði deildinni eru sömu gerðar og deildin er með í notkun og eru því nú 16 slíkir stólar til á deildinni ásamt tveimur Lazyboy stólum. Þessir meðferðarstólar eru afar góðir og öruggir og tryggja að öryggiskröfur séu uppfylltar, t.d. ef bráðatilvik koma upp. Við á deildinni þökkum félaginu innilega fyrir þessa rausnarlegu gjöf sem stuðlar að betri aðstöðu fyrir skjólstæðinga okkar og starfsfólk.“


Starfsfólk almennrar göngudeildar SAk ásamt stjórnar- og starfsfólki KAON við nýju stólana og borðin. Mynd: KAON.

Pétur Þór Jónasson, formaður Krabbameinsfélags Akureyrar og nágrennis, segir gjöfina mikilvæga bæði fyrir sjúklinga og starfsfólk.

„Það er mikið ánægjuefni fyrir stjórn að geta lagt göngudeildinni lið með því að félagið gefi þessa þrjá meðferðastóla ásamt borðum, ekki síst í ljósi þess að meðferðum er stöðugt að fjölga. Það tekur á að vera í lyfjagjöf, sem getur tekið einhverja klukkutíma í einu. Þá er mikilvægt að sjúklingurinn sé í þar til gerðum stól sem hægt er að stilla eftir þörfum. Stólarnir og borðin eru líka mikilvæg til að skapa góða vinnuaðstöðu fyrir starfsfólk, sem þarf þá t.d. ekki að bogra yfir sjúklingnum við að setja upp nál. Sjálfur hef ég verið reglulegur viðskiptavinur göngudeildar í nokkur ár og hef því séð hvar skórinn kreppir,“ segir Pétur Þór í frétt KAON.

Krabbameinsfélag Akureyrar og nágrennis hefur að sögn notið mikillar velvildar frá samfélaginu sem félagið er þakklátt fyrir og vonast til að þessar gjafir eigi eftir að koma að góðum notum á sjúkrahúsinu.