Fara í efni
Umræðan

Samherji hagnaðist um 7,8 milljarða

Hið nýja fiskvinnsluhús Samherja á Dalvík, sem tekið var í notkun á síðasta ári.

Samherji hagnaðist um 7,8 milljarða króna á síðasta ári, að því er fram kemur í tilkynningu frá félaginu. Ársuppgjörið var kynnt á aðalfundi félagsins sem fram fór í gær. Þar var ákveðið var að greiða ekki út arð vegna síðasta árs.

„Þegar litið er til síðasta árs, má segja að reksturinn hafi verið hálfgerð rússibanareið vegna áhrifa heimsfaraldursins. Vegna þessa reyndi verulega á samstöðu allra og útsjónarsemi. Okkur tókst að halda úti skipaflotanum, vinnslunum og annarri starfsemi, þannig að reksturinn hélst svo að segja óbreyttur. Þetta er afrek samstillts starfsfólks, leyfi ég mér að fyllyrða,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja.

Miklar fjárfestingar

Rekstrartekjur Samherja samstæðunnar námu 46,5 milljörðum króna á árinu 2020 samkvæmt rekstrarreikningi og hagnaður af rekstri nam tæplega átta milljörðum króna, sem fyrr segir.

„Ársreikningur Samherja er í evrum en framangreindar upphæðir eru umreiknaðar í íslenskar krónur á meðalgengi ársins 2020. Samherji er áfram í hópi stærstu skattgreiðenda landsins og greiddu Samherji og starfsmenn 5 milljarða króna til hins opinbera á Íslandi á árinu 2021,“ segir í tilkynningunni.

„Sem fyrr var verulegum fjárhæðum varið til fjárfestinga. Þær veigamestu á árinu voru vegna nýs Vilhelms Þorsteinssonar EA 11 og nýrrar fiskvinnslu á Dalvík,“ í tilkynningu Samherja. „Þessar fjárfestingar endurspegla vilja og metnað félagsins til uppbyggingar, þannig að starfsfólk vinni við bestu aðstæður og framleiði hágæða vörur fyrir kröfuharða markaði.“

Framleiðslumet

Þorsteinn Már Baldvinsson forstjóri Samherja segir vinnsluhúsið nýja á Dalvík, sem tekið var í notkun á síðasta ári, ágætt dæmi um þær áskoranir sem þurfti að takast á við. Þar væri nýr búnað og gjörbreytt tækni frá því sem starfsmenn væru vænir en vegna faraldursins hefðu engir utanaðkomandi sérfræðingar í húsið mánuðum saman. „Áskoranir starfsfólksins voru því margar en samt sem áður var slegið framleiðslumet á síðasta fiskveiðiári. Íslenskt hugvit er áberandi í húsinu, svo og framleiðsla flókins búnaðar. Fiskvinnslurnar okkar vinna að stórum hluta gæða afurðir sem fara beint á borð neytenda veiðs vegar um heiminn.“

Annað gott dæmi, segir Þorsteinn, „er koma nýs uppsjávarskips Samherja, Vilhelms Þorsteinssonar EA fyrr á þessu ári, allar aðstæður við smíði skipsins voru krefjandi vegna heimsfaraldursins. Vilhelm er án efa eitt glæsilegasta skip íslenska flotans og íslensk hátækni er áberandi um borð, auk þess að allur aðbúnaður er góður. Með tilkomu þessa skips dregur verulega úr olíunotkun þar sem öll hönnun og búnaður miðast við að minnka kolefnissporið.“

Samherji stendur vel

Eigið fé Samherjasamstæðunnar í árslok 2020 var samtals 78,8 milljarðar króna og eiginfjárhlutfallið 72% , segir í tilkynningunni, „sem undirstrikar að félagið stendur fjárhagslega vel að vígi.“ 

Stjórn félagsins var endurkjörin. Formaður stjórnar er Eiríkur S. Jóhannsson, aðrir stjórnarmenn eru Dagný Linda Kristjánsdóttir, Helga Steinunn Guðmundsdóttir, Kristján Vilhelmsson og Óskar Magnússon.

Hér má sjá lykiltölur úr rekstri Samherja fyrir árið 2020. Þær eru neðst í tilkynningunni.

  • Á myndinni er Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja.

 

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45