Áhugalausir þingmenn
25. mars 2024 | kl. 12:30
KA vann mjög öruggan sigur, 3:0, á Aftureldingu í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmóts kvenna í blaki í dag í KA-heimilinu.
Afturelding byrjaði töluvert betur bæði í fyrstu og annarri hrinu en í þeirri þriðju var aldrei spurning um sigur heimamanna.
Liðin mætast næst í Mosfellsbæ á þriðjudagskvöldið klukkan 19.00.
Eldhressir KA-menn eftir sannfærandi sigur í dag. Ljósmynd: Egill Bjarni Friðjónsson.