Fara í efni
Umræðan

KA-menn taka á móti botnliði Skagamanna

KA sigraði ÍA 3:0 á heimavelli í fyrra. Myndin er úr þeim leik: Bjarni Aðalsteinsson, sem gerði eitt markanna, Ísak Snær Þorvaldsson, sem slegið hefur í gegn með Breiðabliki í sumar og Sveinn Margeir Hauksson. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

KA og ÍA mætast í Bestu deildinni í knattspyrnu, efstu deild Íslandsmótsins, í dag klukkan 16.00 á nýja Greifavellinum á KA-svæðinu. Bæði lið eiga 16 leiki að baki, KA er í 2.-3. sæti deildarinnar með 30 stig en Skagamenn reka lestina; eru í neðsta sæti með aðeins átta stig.

KA vann fyrri leik liðanna í sumar mjög örugglega á Akranesi 15. maí, 3:0, þar sem Daníel Hafsteinsson, Elfar Árni Aðalsteinsson og Jakob Snær Árnason skoruðu. Þegar liðin mættust síðasta á Akureyri unnu KA-menn líka 3:0, 29. ágúst í fyrra á Greifavellinum hinum eldri, Akureyrarvelli. Þá skoruðu Bjarni Aðalsteinsson, Jakob Snær og Hallgrímur Mar Steingrímsson.

Lið KA er jafnt Víkingi í 2.-3. sæti deildarinnar með 30 stig, Víkingar eiga að vísu einn leik til góða en með sigri í dag verður KA-liðið í mjög góðri stöðu. KA hefur unnið fjóra af síðustu fimm leikjum en Skagamenn hafa hins vegar tapað síðustu sex og hafa raunar aðeins unnið einn leik í sumar; þeir lögðu Íslands- og bikarmeistara Víkings 3:0 á Akranesi 24. apríl.

Arnar Grétarsson, þjálfari KA, stýrir liðinu ekki í dag; þetta er annar leikur hans af fimm í banni. Liðið vann FH 3:0 í þeim fyrsta, KA-hefur áfraýjað banninu en standi það missir Arnar einnig af leikjum gegn Stjörnunni, Víkingi og Fram.

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45