Fara í efni
Umræðan

Jagurinovski og Kezic ekki áfram með Þór

Örvhenta skyttan Tomislav Jagurinovski, til vinstri, og leikstjórnandinn Josip Kezic,Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson

Útlendingarnir sem léku með handboltaliði Þórs í vetur, Tomislav Jagurinovski frá Norður-Makedóníu og Króatinn Josip Kezic, verða ekki með liðinu næsta vetur. Þetta var tilkynnt á Facebook síðu Þórs í gær.

„Tomi var okkur mikill happafengur og féll gríðarlega vel inní hópinn og er drengur góður. En að vera 24 ára einn á Íslandi reyndist honum erfitt og togaði heimalandið í hann. Þar á hann sína fjölskyldu og kærustu. Við óskum honum alls hins besta og hver veit nema hann mæti aftur síðar,“ segir í tilkynningunni.

„Josip kom til okkar í mjög litlu formi en undir lok timabils var hann verulega farinn að láta að sér kveða og kominn í hörku form. Dróg meðal annars vagninn í fyrri umspils leik okkar við Fjölni og var allt í öllu. En daginn sem hann var að ferðast til Íslands um miðjan janúar fékk hann þær gleðifréttir að eiginkona hans var eigi einsömul af þeirra fyrsta barni. Stjórn handknattleiksdeildar ákvað að nýta sér ekki klásúlu í samningi um framlengingu þar sem liðið er með unga og efnilega leikmenn í stöðu leikstjórnanda og ætlum að treysta þeim til verksins næsta tímabil.“

Þórsarar leika áfram í næstu efstu deild Íslandsmótsins, Grill 66 deildinni, næsta vetur. „Undibúningur fyrir næsta vetur er kominn í farveg og stefnum við á að mæta sterkari til leiks og auðvitað með herdeild ungra leikmanna sem eru árinu ríkari í þessari deild.“

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45