Fara í efni
Umræðan

Hyggjast geyma fisk lifandi í tönkum um borð

Teikning af Oddeyrinni EA, skipinu sem um ræður, en það er nú í lengingu hjá Karstensens Skibsverft AS í Danmörku.

Skipi, sem Samherji keypti frá Írlandi á síðasta ári, verður breytt fyrir bolfiskveiðar, þar sem sú nýjung bætist við að hægt verður að dæla fiski um borð og geyma lifandi í sérútbúnum tönkum. Samherjamenn segja það fyrirkomulag bjóða upp á mun meiri sveigjanleika í meðferð afla og betri stýringu vinnuálags um borð og í landi. Þetta fyrirkomulag hefur ekki verið stundað við veiðar hérlendis.

Um borð býður þessi aðferð upp á, að því er segir í frétt á heimsíðu Samherja:

  • Fiskur fer í sér útbúna tanka þar sem honum er haldið lifandi. Þá er hægt að vinna hann síðar um borð eða koma með fiskinn lifandi að landi.
  • Fiskur er blóðgaður/slægður og settur í tanka með kældum sjó til geymslu.
  • Fiskur er blóðgaður/slægður í hefðbundin kör sem geymd eru í kældri fiskilest.

Aðferðin felst í því að fiskur er veiddur í hefðbundna botnvörpu en í stað þess að taka poka inn á dekk og sturta úr honum, sem veldur miklu álagi á fiskinn, að sögn Samherjamanna, þá er pokinn tekinn á síðuna og aflanum dælt um borð með sogdælukerfi. „Það fer mun betur með aflann og er þessi aðferð vel þekkt úr laxeldis iðnaðinum við tilfærslu á lifandi fiski,“ segir á heimasíðu Samherja.

„Við hjá Samherja erum sannfærð um að mikil tækifæri til framfara felist í þessari aðferð. Aldur á fiski þegar hann kemur til vinnslu í hefðbundnum landvinnsluhúsum gæti farið úr 3-5 dögum niður í 0-12 klst. Afhendingaröryggi til landvinnslunnar ykist einnig til muna, því með að geyma fiskinn í kvíum væri hægt að jafna út skammtíma sveiflur þegar hráefnisskortur getur orðið vegna veðurs á miðum eða sveiflum í veiðum. Einnig aukast möguleikar á því að sækja inn á nýja markaði með ferskan ófrosinn fisk vegna mun lengri líftíma vörunnar og stöðugra framboði. Við höfum kynnt okkur þessa aðferðafræði í Noregi og hefur starfsfólk Samherja lagt umtalsverða vinnu í að kynna sér ýmis rannsóknarverkefni þessu tengd sem gerð hafa verið þar.“

Framtíðarsýn Samherjamanna er að geta geymt fiskinn í sjókerjum eftir að komið er af veiðum þegar það hentar en um það verður ekki að ræða strax.

Fram kemur á heimasíðu fyrirtækisins að Norðmenn hafi stundað slíkar veiðar í töluverðum mæli síðustu ár og byggt upp regluverk í kringum þær. Þar sé miðað við að sé fiski haldið lifandi skemur en 12 vikur þurfi ekki að meðhöndla hann sem eldisfisk, því ekki sé um eiginlegt fiskeldi að ræða heldur eingöngu geymsluform. Reglurnar snúist bæði um dýravelferð og að aðstaða sé um borð til að flokka og vigta allan afla.

Nánar á heimasíðu Samherja

Áhugalausir þingmenn

Björn Valur Gíslason skrifar
25. mars 2024 | kl. 12:30

Akureyri – næsta borg Íslands

Ingibjörg Isaksen skrifar
20. mars 2024 | kl. 14:00

Fimm ástæður til að fagna

Guðmundur Haukur Sigurðarson skrifar
19. mars 2024 | kl. 10:00

Mótmæli sjálfstæðismanna

Björn Valur Gíslason skrifar
15. mars 2024 | kl. 10:15

Frábærar viðtökur bæjarstjóra!

Hjörleifur Hallgríms skrifar
15. mars 2024 | kl. 09:30

Tjaldsvæðið – Villigötur

Jón Hjaltason skrifar
14. mars 2024 | kl. 10:45