Fara í efni
Umræðan

Garðurinn hans Gústa vígður á morgun

Ásgerður Jana og Berglind Eva, dætur Ágústs heitins og eiginkonu hans, Guðrúnar Gísladóttur, tóku fyrstu skóflustungun að Garðinum 16. júlí í fyrra. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Garðurinn hans Gústa – glæsilegasti útikörfuboltavöllur landsins, eins og það er orðað í tilkynningu – verður formlega vígður og afhentur Akureyrarbæ til eignar og umsjónar á morgun, laugardag, klukkan 11:00. Við sama tilefni verður minnisvarði til heiðurs athafnamanninum og körfuknattleiksþjálfaranum Ágústi H. Guðmundssyni afhjúpaður við inngang vallarins. Ágúst hefði orðið 55 ára í dag, föstudaginn 26. ágúst, en hann féll frá langt fyrir aldur fram á síðasta ári.

Markaði djúp spor

Forsaga Garðsins hans Gústa er sú snemma á síðasta ári réðust nokkrir vinir Ágústar í það verkefni að reisa veglegan útikörfuboltavöll við Íþróttahús Glerárskóla honum til heiðurs. Ágúst er sigursælasti körfuknattleiksþjálfari Þórs frá upphafi og markaði djúp spor í sögu íslensks körfuknattleiks. Hann stýrði jafnframt flestum æfingum og leikjum í Glerárskóla og því staðsetningin vel við hæfi. Nafn vallarins – Garðurinn hans Gústa – er svo tilkomið vegna þess að Gústi var grjótharður Boston Celtics aðdáandi, en heimavöllur NBA liðsins er einmitt TD Garden og þar áður Boston Garden.

Eins gott að allt sé rétt! Óðinn Ásgeirsson og Guðmundur Ævar Oddsson með málbandið og Björn Sveinsson í hlutverki eftirlitsmanns, þegar körfurnar voru settar upp seint á síðasta ári. Ljósmyndir: Skapti Hallgrímsson.

„Garðurinn hans Gústa var tekinn í notkun í nóvember síðastliðnum og hefur verið afar vel nýttur,“ segir í tilkynningu. „Fjöldi körfuknattleiksiðkenda sækir völlinn á hverjum degi og ríkir mikil ánægja með þennan fyrsta „alvöru“ útikörfuboltavöll norðan Glerár, vígi körfuboltans á Akureyri. Síðan völlurinn var tekinn í notkun er búið að reisa veglega þriggja hæða áhorfendastúku, setja upp ljósastaura, malbika og þökuleggja í kringum völlinn og reisa minnisvarða, svo eitthvað sé nefnt. Nú þegar allt er klappað og klárt verður völlurinn afhentur Akureyrarbæ til eignar og umsjónar.“

Óendanlega þakklátir

„Aðstandendur Garðsins hans Gústa söfnuðu um 10 milljónum til verkefnisins auk afslátta, gjafa og sjálfboðavinnu. Akureyrarbær lagði til það fé sem á vantaði. Margir einstaklingar, félagasamtök og fyrirtæki styrktu þetta sannkallaða samfélagsverkefni. Þá hafa verktakar og fyrirtæki heldur betur greitt götu verkefnisins með því að gefa vinnu sína og aðföng og/eða í formi ríflegs afsláttar. Loks eru ótaldir þeir fjölmörgu einstaklingar sem hafa lagt á sig mikla vinnu til þess að láta þessa hugmynd verða að veruleika. Án gjafmildi og fórnfýsi einstaklinga, félagasamtaka og fyrirtækja hefði Garðurinn hans Gústa ekki risið.

Aðstandendur Garðsins hans Gústa eru óendanlega þakklátir Akureyrarbæ og öllum þeim sem gefið hafa til verkefnisins með einum eða öðrum hætti og senda þeim sínar allar bestu þakkir. Viðkomandi eru boðnir sérstaklega velkomnir á vígsluna og afhendinguna á laugardaginn. Athöfnin er hins vegar opin öllum áhugasömum en í kjölfar hennar verður blásið til 3 á 3 Götukörfuboltamóts í Garðinum hans Gústa.“

Sjá nánari upplýsingar um mótið á Facebook síðu Garðsins hans Gústa.

Feðgarnir, Ágúst H. Guðmundsson og Júlíus Orri Ágústsson, eftir að 10. flokkur Þórs sigraði á Scania Cup í Svíþjóð, óopinberu Norðurlandamóti í körfubolta, vorið 2017. Júlíus var valinn besti leikmaður mótsins.

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15

Ómenning í fjallinu

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
12. apríl 2024 | kl. 11:25

Elínborg – meðmæli með biskupsefni

Björg Ágústsdóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 09:15

Í þágu ME-sjúklinga

Freyja Magnúsdóttir og Pétur Þór Jónasson skrifa
10. apríl 2024 | kl. 05:00