Fara í efni
Umræðan

Fyrstu landsliðsmörk Aldísar og Rakelar

Fimm úr KA/Þór. Frá vinstri: Rakel Sara Elvarsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir, Ásdís Guðmundsdóttir, Aldís Ásta Heimisdóttir og Unnur Ómarsdóttir. Ljósmynd af vef KA.

Aldís Ásta Heimisdóttir og Rakel Sara Elvarsdóttir skoruðu báðar í fyrsta skipti fyrir A-landsliðið í handbolta á æfingamóti sem lauk í Tékklandi í dag. Fimm leikmenn úr Íslands- og bikarmeistaraliði KA/Þórs voru með A-landsliðinu á mótinu; auk Aldísar og Rakelar þær Ásdís Guðmundsdóttir, Rut Arnfjörð Jónsdóttir og Unnur Ómarsdóttir.

Fjallað er um Stelpurnar okkar í landsliðinu á vef KA í dag. Þar segir:

Rakel Sara lék sinn fyrsta A-landsleik þegar íslenska liðið mætti B-liði Noregs en eftir hörkuleik fór Noregur með 25-30 sigur af hólmi. Ekki nóg með að leika sinn fyrsta landsleik þá skoraði Rakel Sara tvö mörk í leiknum og nýtti heldur betur tækifærið vel.

Því næst léku stelpurnar gegn Sviss og vannst þar afar sannfærandi 30-22 sigur eftir að staðan hafði verið 19-14 í hléinu. Aldís Ásta Heimisdóttir gerði sín fyrstu landsliðsmörk í leiknum en hún gerði tvö mörk og þá gerði Ásdís Guðmundsdóttir eitt mark.

Í lokaleiknum sem fram fór í dag lék íslenska liðið við heimalið Tékka. Tékkar eru í lokaundirbúning sínum fyrir HM og gáfu stelpurnar þessu sterka liði svo sannarlega alvöru leik. Liðin skiptust á að leiða og leiddi Ísland meðal annars 22-24 er skammt var til leiksloka. Það dugði þó ekki og heimakonur fóru með 26-25 sigur af hólmi. Unnur Ómarsdóttir gerði tvö mörk í leiknum.

Íslenska liðið endaði þar með í 2. sæti á mótinu og er það algjörlega frábært að við eigum nú fimm fulltrúa í landsliðinu og að stelpurnar séu allar búnar að sýna það og sanna að þær séu klárar í verkefnið. Það verður svo sannarlega áfram spennandi að fylgjast með framgöngu stelpnanna með landsliðinu í komandi framtíð.

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15

Ómenning í fjallinu

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
12. apríl 2024 | kl. 11:25

Elínborg – meðmæli með biskupsefni

Björg Ágústsdóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 09:15

Í þágu ME-sjúklinga

Freyja Magnúsdóttir og Pétur Þór Jónasson skrifa
10. apríl 2024 | kl. 05:00