Fara í efni
Umræðan

Björgólfur hættir sem forstjóri Samherja

Björgólfur Jóhannsson og Þorsteinn Már Baldvinsson.

Björgólfur Jóhannsson lætur nú af störfum forstjóra Samherja hf., en því starfi hefur hann gegnt einn frá nóvember 2019 en frá mars 2020 samhliða Þorsteini Má Baldvinssyni. Þorsteinn Már verður nú á ný eini forstjóri félagsins. Greint var frá þessu á heimasíðu Samherja rétt í þessu.

„Í kjölfar ásakana á hendur Samherja í nóvember 2019 steig Þorsteinn Már tímabundið til hliðar sem forstjóri. Stjórn Samherja kvaddi hann á ný til starfa í mars 2020 við mjög erfiðar aðstæður í þjóðfélaginu vegna kórónuveirunnar. Með samstilltu átaki tókst starfsfólki Samherja að halda úti bæði veiðum og vinnslu með útsjónarsemi og aðlögum að þeim sérstöku aðstæðum sem uppi voru. Reksturinn er nú nánast í eðlilegu horfi og ný og fullkomin hátæknifiskvinnsla sem opnuð var á Dalvík er farin að ganga snurðulaust. Allt bendir til þess að tekist hafi að hefta útbreiðslu kórónuveirufaraldursins innanlands, smit eru nær engin og vaxandi þungi í bólusetningum,“ segir á heimasíðu Samherja.

Þar segir ennfremur: „Þær ásakanir sem hafðar hafa verið uppi á hendur Samherja eru nú komnar í farveg fyrir dómstólum. Þar gefst loks tækifæri til hreinsa nöfn þeirra sem ranglega eru sakaðir, ekki með brotakenndum frásögnum í fjölmiðlum, heldur með kerfisbundnum, réttum og lögmætum hætti. Þannig hefur norski saksóknarinn nú komist að þeirri niðurstöðu að ásakanir um peningaþvætti eigi ekki við rök að styðjast og ekkert refsivert hafi átt sér stað í viðskiptum DNB bankans og Samherja og ákveðið að fella málið niður.“

Stjórn Samherja færir Björgólfi þakkir fyrir mikilvægt hlutverk og framlag. Hann hafi reynst félaginu ómetanlegur styrkur þegar mest á reyndi. „Ég er stoltur af því að stjórn Samherja skuli hafa leitað til mín. Af minni hálfu kom aldrei annað til greina en að verða því kalli. Ég vil þakka öllu starfsfólki Samherja fyrir samstarfið. Þar er valinn maður í hverju rúmi,“ segir Björgólfur Jóhannsson á heimasíðu Samherja.

„Það blandast engum hugur um það hversu mikilvægt það var fyrir Samherja að fá Björgólf til liðs við okkur. Það veitti svo sannarlega ekki af manni með hans afl og eiginleika. Ég er honum þakklátur fyrir einstakt samstarf og mikla vináttu sem hann hefur sýnt okkur,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson.

Björgólfur hefur verið kjörinn formaður hlítingarnefndar Samherja en sú nefnd hefur yfirumsjón með regluvörslu og stjórnarháttum innan samstæðu Samherja. Mun hann stjórna skráningu og formlegri innleiðingu slíkra reglna ásamt öðrum ráðgjafastörfum fyrir Samherja eftir því sem tilefni verður til.

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15

Ómenning í fjallinu

Adolf Ingi Erlingsson skrifar
12. apríl 2024 | kl. 11:25

Elínborg – meðmæli með biskupsefni

Björg Ágústsdóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 09:15

Í þágu ME-sjúklinga

Freyja Magnúsdóttir og Pétur Þór Jónasson skrifa
10. apríl 2024 | kl. 05:00

Umhyggja, kærleikur og mennska

Elínborg Sturludóttir skrifar
08. apríl 2024 | kl. 16:03