Fara í efni
Umræðan

4 milljarða hagnaður á starfsemi erlendis

Cuxhaven NC við bryggju á Akureyri. Skipið er í eigu Deutsche Fischfang Union, dótturfélags Samherja Holding ehf.

Hagnaður af rekstri alþjóðlega sjávarútvegsfyrirtækisins Samherja Holding ehf. á árinu 2020 nam 27,4 milljónum evra – rúmlega fjórum milljörðum króna miðað við skráð gengi dagsins – og 1,4 milljónum evra, liðlega 206 milljónum króna, á árinu 2019.

Samherji Holding ehf. heldur utan um alla erlenda starfsemi Samherja. Rekstur samstæðunnar felst í útgerð, landvinnslu, markaðs- og sölustarfsemi auk flutningastarfsemi. Ársreikningarnir voru samþykktir á aðalfundi félagsins í gær.

„Ekki hefur enn tekist að staðreyna nægilega vel gögn vegna útgerðar í Namibíu sem nú hefur verið aflögð og flokkuð sem slík í ársreikningunum. Þá ríkir enn óvissa um málarekstur vegna fjárhagslegra uppgjöra sem tengjast rekstrinum í Namibíu. Af þessum ástæðum gerir stjórn Samherja Holding ehf. í skýrslu sinni fyrirvara um uppgjör þess félags sem annaðist starfsemina þar í landi. Sama fyrirvara gera endurskoðendur félagsins í áritun sinni. Að öðru leyti er áritun á reikningana fyrirvaralaus,“ segir í tilkynningu á vef Samherja.

„Framangreind óvissa hefur valdið þeim drætti sem orðið hefur á gerð ársreikninganna en stjórnin taldi mikilvægt að freista þess að fá sem gleggstar upplýsingar um þessa þætti áður en gengið yrði frá frá reikningunum.“

Eigið fé 58 milljarðar króna

Tekjur samstæðu Samherja Holding ehf. af seldum vörum námu 308,6 milljónum evra árið 2020 samkvæmt ársreikningi þess árs, um 45,5 milljörðum króna, en voru árið á undan 355,7 milljónir evra, um 52,4 milljarðar.

Eignir samstæðunnar námu 585,4 milljónum evra í lok ársins 2020 – rúmlega 86 milljarðar króna, samanborið við 627,0 milljónir evra í lok ársins 2019 – 92,4 milljarðar. Eigið fé nam 393,2 milljónum evra í lok ársins 2020 – 58 milljörðum króna, en í lok árs 2019 nam eigið fé samstæðunnar 392,4 milljónum evra.

„Langumsvifamesti þátturinn í rekstri Samherja Holding ehf. eru sjávarútvegsfyrirtæki í Evrópu og Norður-Ameríku. Af erlendum fyrirtækjum má nefna Deutsche Fischfang Union (DFFU) í Cuxhaven sem er elsta sjávarútvegsfyrirtæki Þýskalands. Samherji Holding hefur átt aðkomu að rekstri þess félags í rúmlega aldarfjórðung með góðum árangri. Hér má einnig nefna sölufyrirtækið Seagold og sjávarútvegsfyrirtækið Onward Fishing í Bretlandi og fyrirtæki í Noregi og Kanada. Í rekstri þessara félaga hefur verið lögð rík áhersla á fjárfestingar þannig að innviðir þeirra, tækjakostur og aðrar vinnuaðstæður starfsfólks endurspegli það besta sem völ er á hverju sinni,“ segir í tilkynningunni.

Á áðurnefndum aðalfundi Samherja Holding ehf. fór fram stjórnarkjör í félaginu og voru Eiríkur S. Jóhannsson, Óskar Magnússon, Kristján Vilhelmsson, Helga Steinunn Guðmundsdóttir og Þorsteinn Már Baldvinsson kosin í stjórn þess.

Lítur björtum augum til framtíðar

„Eins og ársreikningarnir sýna er Samherji Holding ehf. sterkt félag með mikla möguleika til framtíðar litið. Efnahags- og lausafjárstaðan er góð og sú vinna sem ráðist hefur verið í á undanförnum mánuðum mun skila árangri. Þrátt fyrir áföll í rekstrinum er ég bjartsýnn á framtíðina því hjá okkur starfar gott fólk. Samherji Holding er alþjóðlegt sjávarútvegsfyrirtæki með starfsemi víða um heim. Íslendingar eiga að vera ófeimnir við að taka þátt í atvinnurekstri erlendis. Við eigum að nýta hátt menntunarstig, þekkingu okkar og reynslu í fyrirtækjarekstri á erlendum vettvangi,“ segir Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja Holding ehf í tilkynningunni.

Hvar á að leggja Blöndulínu 3?

Karl Ingólfsson skrifar
23. apríl 2024 | kl. 18:00

Svona er síminn hannaður til að stela athygli okkar

Skúli Bragi Geirdal skrifar
22. apríl 2024 | kl. 08:20

Hvar hvílir Jónas frá Hrafnagili?

Sunna Vilborg Jónsdóttir skrifar
21. apríl 2024 | kl. 06:00

Boðskapur frá forsetaframbjóðanda

Ásdís Rán skrifar
19. apríl 2024 | kl. 14:00

Stórkostleg upplifun

Haraldur Hauksson skrifar
14. apríl 2024 | kl. 14:30

Þjónusta þjóðkirkju við landsbyggðina

Guðrún Karls Helgudóttir skrifar
12. apríl 2024 | kl. 15:15