Fara í efni
Mannlíf

„Stór tímamót í íslenskum sjávarútvegi“

Oddeyrin EA 210 kom til Akureyrar í morgun eftir miklar breytingar í Danmörku, eins og Akureyri.net greindi frá fyrr í dag. Skipið verður útbúið þannig að hægt verður að geyma lifandi fisk í körum og koma með hann ferskan til vinnslu í landi.

Hjörvar Kristjánsson, skipaverkfræðingur og verkefnastjóri á útgerðarsviði Samherja, segir að verkefnið hafi vakið töluverða athygli í alþjóðlegum sjávarútvegi.

„Karstensens skipasmíðastöðin stendur framarlega á sínu sviði og þar er daglega fólk sem fylgist vel með öllum tækninýjungum. Við urðum sannarlega vör við áhuga greinarinnar á þessu verkefni okkar og víst er að það verður vel fylgst með okkur þegar skipið kemst á veiðar. Þetta eru stór tímamót í íslenskum sjávarútvegi,“ segir Hjörvar á heimasíðu Samherja.

Spriklandi ferskur í landvinnslu

Tíminn frá því fiskinum er slátrað og þar til hann kemur í landvinnslu gæti hæglega farið úr þremur til fimm dögum niður í nokkrar klukkustundir, með tilkomu Oddeyrarinnar. Þetta segir Heiðdís Smáradóttir, verkefna- og gæðastjóri Samherja fiskeldis. 

„Afhendingaröryggi landvinnslunnar eykst til mikilla muna. Með því að geyma fiskinn lifandi um borð eða í kvíum í landi er hægt að jafna út skammtímasveiflur, svo sem vegna hráefnisskorts,“ segir Heiðdís á vef fyrirtækisins. „Einnig aukast möguleikar á því að sækja inn á nýja markaði með ferskan ófrosinn fisk vegna lengri líftíma vörunnar, svo dæmi séu nefnd. Stór hluti af þessu öllu saman er að geta alltaf átt hráefni klárt fyrir landvinnsluna og svo auðvitað að geta boðið upp á enn ferskara hráefni. Við erum ekki komin á þann stað að geyma fiskinn í kvíum á landi, en möguleikarnir eru fyrir hendi. Norðmenn hafa sett fisk í kvíar en með þessu skipi er stigið skrefinu lengra. Samherji leggur ríka áherslu á ferskleika og það erum við sannarlega að gera með þessu nýja skipi,“ segir Heiðdís.

Búnaðurinn reyndist vel

Hjörtur Valsson, skipstjóri á Oddeyrinni, er hæstánægður. „Mér líst mjög vel á skipið. Við fórum í tvo stutta prufutúra við Danmörku, aðallega til að tékka af búnaðinn og allt virkaði fínt. Það ríkir auðvitað alltaf ákveðin spenna þegar eitthvað nýtt kemur fram á sjónarsviðið og ég hef heyrt ýmsar pælingar, sem segir sitt um áhugann á þessari nýjung. Ég er alveg sannfærður um að þetta gangi allt saman upp og það hefur verið frábært að vinna að þessu verkefni með framsæknu og lausnarmiðuðu starfsfólki Samherja,“ segir Hjörtur.

Heimasíða Samherja