Fara í efni
Mannlíf

Starfsmenn Samherja í tveggja daga vetrarfrí

Fiskvinnsla Samherja á Dalvík. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson.

Starfsfólk vinnsluhúsa Samherja og ÚA á Dalvík og Akureyri fer í tveggja daga vetrarfrí í vikunni, fimmtudag og föstudag. Starfsmenn fá frí í einn dag á launum og hinn daginn er tekið út orlof. „Þetta fyrirkomulag er unnið í góðu samstarfi við starfsmenn, sem hafa val um að taka frí með þessum hætti. Mismunandi er hjá öðrum starfsstöðvum hvernig fyrirkomulagið er útfært,“ segir á vef fyrirtækisins.

Starfsfólk fiskþurrkunar ÚA á Laugum Í Reykjadal fer einnig í vetrarfrí í lok vikunnar. Erfitt er að loka í tvo daga hjá fiskeldi Samherja og er vetrarfríið leyst með öðrum hætti, að því er segir í tilkynningunni.

100 % þáttaka

Á Akureyri og Dalvík verður sem sagt unnið þrjá daga vikunnar. Starfsmenn vinnsluhúsanna eru á þriðja hundrað og segir Gestur Geirsson framkvæmdastjóri landvinnslu Samherja að þessi tilhögun mælist mjög vel fyrir meðal starfsfólksins. Vetrarfríið og fyrirkomulag þess nær til um fimmhundruð starfsmanna Samherja.

„Þetta eru sömu dagar og vetrarfrí er í grunnskólum á svæðinu, þannig að það skapast gjarnan álag á fjölskyldufólk og margir vilja vera í fríi og njóta tímans með fjölskyldunni í vetrarfríinu. Við útfærum þetta þannig að fólk tekur einn dag af orlofinu og hinn daginn greiðir vinnuveitandinn. Þetta er gert í góðu samráði við trúnaðarmenn á hverjum vinnustað og er algjörlega valfrjálst. Starfsfólk getur líka unnið þessa daga við verkefni sem við þá skipuleggjum. Undirtektirnar eru hins vegar svo góðar að mér sýnist núna að enginn ætli að mæta til vinnu. Við gerðum þetta líka í fyrra og núna var boðið upp á þetta val með ágætum fyrirvara,“ segir Gestur á vef Samherja.

Mikilvægt að starfsfólkið hafi val

Björn Snæbjörnsson formaður Einingar-Iðju segir þetta fyrirkomulag almennt jákvætt. Í vinnsluhúsum ÚA á Akureyri og Samherja á Dalvík eru flestir starfsmenn í Einingu-Iðju.

„Trúnaðarmenn félagsins á hverjum stað hafa séð um þessi mál og sjálfur er ég jákvæður fyrir þessu. Í mínum huga er mikilvægt að starfsfólkið hafi val, sem er raunin í þessum tilvikum og þess vegna er þetta samkomulag milli launþega og vinnuveitenda jákvætt. Ég hef heyrt í trúnaðarmönnum sem segja mér að starfsfólkið sé sátt við þetta fyrirkomulag,“ er haft eftir Birni á vef Samherja.

Nánar hér á vef Samherja.