Fara í efni
Mannlíf

Spánverjinn Perello til Þórs frá Hetti/Hugin

Knattspyrnudeild Þórs hefur gert samning við spænska miðjumanninn Ion Perello og mun hann spila með liðinu út tímabilið, hið minnsta. Þetta kemur fram á heimasíðu Þórs í dag.

Perello er 24 ára gamall og hefur stærstan hluta ferilsins leikið í heimalandi sínu en hann kemur til Þórs frá Hetti/Hugin þar sem hann hefur leikið í sumar og í fyrra.

Hann skrifaði undir samning í Hamri í dag og mun æfa með liðinu seinnipartinn. Hann verður svo orðinn löglegur með liðinu fyrir næsta leik í Lengjudeildinni sem er gegn Þrótti Vogum á Þórsvellinum (SaltPay-vellinum) næstkomandi fimmtudag.