Fara í efni
Mannlíf

Niceair aflýsir flugi til Bretlands í júní

Þorvaldur Lúðvík Sigurjónsson, framkvæmdastjóri Niceair, þegar Airbus þota félagsins kom til Akureyrar í fyrsta skipti á dögunum. Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

Í ljósi vandkvæða við flug til og frá Bretlandi mun Niceair aflýsa fyrirhuguðum flugum til Bretlands í júní. Flug til Bretlands verða ekki bókanleg fyrr en varanleg lausn er komin á. Öllum farþegum verður boðin endurgreiðsla, og þeim sem vilja hjálpað að komast á áfangastað erlendis eða heim aftur. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá Þorvaldi Lúðvík Sigurjónssyni, framkvæmdastjóra félagsins.

„Eftir því sem næst verður komist felst vandinn m.a. í því að Ísland er með tvíhliða samning við Bretland um flugþjónustu og Bretland er með sams konar samning við Evrópusambandið. Þessir tveir samningar skarast í Bretlandi. Vandamálið byrjar þegar flytja á farþega frá Bretlandi til Íslands af flugrekanda með heimilisfesti í Evrópusambandinu (en ekki í Bretlandi eða á Íslandi).

Áhyggjuefni Breta er neytendavernd, en eftir Brexit viðurkenna Bretar ekki lengur sjálfkrafa víðtæk neytendavarnarlög sem fylgja evrópskum (EU) flugrekendaskírteinum samkvæmt reglugerð EU261/2004. Bresk yfirvöld vildu einnig meina að okkar ágætu samstarfsaðilar hefðu ekki heimildir til flugs til og frá Bretlandi, en þeir eru samt sem áður á lista yfir viðurkennda flugrekendur af breskum stjórnvöldum. Að auki var gerð krafa um að Niceair, íslenskt fyrirtæki, hefði breskt ferðaskrifstofuleyfi til sölu pakkaferða (flug, gisting, bílaleigubílar), sem er ekki starfsemi sem Niceair er í. Hvergi var minnst á þessi atriði í 3ja mánaða umsóknarferli um lendingarheimildir og stæði á flugvöllum í Bretlandi.

Önnur flug hafa gengið mjög vel. Þannig hafa ekki komið upp nein vandamál í tengslum við Danmörku og Tenerife, sem ganga mjög vel og bókunarstaða þar góð, en báðir þeir áfangastaðir eru innan Samevrópska flugsvæðisins. 

Við höfum unnið sleitulaust að lausnum og lagt mikið af útfærslum á borð breskra yfirvalda. Við gerð tillagna höfum við notið öflugs liðsinnis Samgöngustofu, Utanríkisráðuneytis og breska sendiráðsins, en allt komið fyrir ekki. Framundan er helgi í Bretlandi og það að heyra á Bretum að ólíklegt sé að sú lausn sem er á borðinu verði samþykkt í tæka tíð vegna skorts á tíma og mannafla.

Okkar forgangsmál er að valda farþegum okkar sem minnstri röskun og hörmum við mjög þau óþægindi sem þetta kann að valda. Þetta var ófyrirsjáanlegt og ekki í okkar valdi að breyta.

Viðræður við bresk stjórnvöld munu halda áfram og miða að farsælli lausn málsins innan skamms.“