Fara í efni
Mannlíf

Merkur kafli – dálítið kraftaverk hefur gerst

Slökkvibílar Isavia á Akureyrarflugvelli tóku á móti Airbus þotu Niceair með heiðursbunu! Ljósmynd: Skapti Hallgrímsson

„Mér líður eins og hér hafi gerst dálítið kraftaverk og verið sé að skrifa merkan kafla í bráðum 160 ára sögu Akureyrarbæjar. Og ég held að sú sé raunin,“ sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri, þegar hún ávarpaði gesti á Akureyrarflugvelli í dag, eftir að Airbus þota Niceair kom í fyrsta sinn til bæjarins.

Ásthildur nefndi að margir yrðu án efa fegnir að geta framvegis flogið beint frá Akureyri til annarra landa í stað þess að verja dýrmætum tíma og heilmiklum fjármunum í að keyra til Keflavíkur, bara til þess eins að komast úr landi.

„Akureyri er að stækka og breytast úr bæ í litla borg. Og til þess að bærinn okkar geti haldið áfram að þróast, vaxa og dafna, er afar mikilvægt að allar samgöngur séu eins og best verður á kosið. Með tilkomu millilandaflugs í föstum skorðum til og frá bænum, styrkist lífæð samfélagsins hér, og forsenda skapast fyrir enn frekari vexti Akureyrar, nýjum og sögulegum sigrum svæðisborgarinnar,“ sagði Ásthildur

„Með stofnun flugfélagsins NiceAir er ekki látið skeika að sköpuðu eða rennt blint í sjóinn. Þorvaldur Lúðvík og hans fólk hefur gert ítarlega rannsókn á markaðinum, lagt mat á eftirspurn og reiknað út allar rekstrarforsendur. Undirbúningsvinnan hefur verið mjög fagleg og því er óhætt að segja að hið nýja flugfélag sé reist á traustum grunni.

Hægt og bítandi styrkjast ákveðnir landsbyggðarkjarnar og mér segir svo hugur að nú hafi skapast raunverulegar forsendur til rekstrar öflugs flugfélags hér á Norðurlandi, eins og markaðsrannsóknir Þorvaldar Lúðvíks hafa leitt í ljós.

Það þarf ekki að fjölyrða um mikilvægi flugsins fyrir atvinnulífið og fólkið á Akureyri og raunar á Norðurlandi öllu. Viðbygging við flugstöðina, beint flug og stórbættur aðflugsbúnaður, renna styrkari stoðum undir þróun efnahagslífsins á allri landsbyggðinni. Og tækifærin verða enn meiri fyrir kraftmikla frumkvöðla,“ sagði Ásthildur Sturludóttir, bæjarstjóri á Akureyri.