Listagyðjan mætt og sýnishorn af sumri
Skemmtileg stemning var í göngugötunni í miðbæ Akureyrar í gærkvöldi þegar Listasumar hófst með pompi og prakt. Gilfélagið bauð til dansiballs og ýmislegt gerði það að verkum að glimrandi vel tókst til; fjöldi fólks mætti á staðinn í góðu skapi, gatan var skemmtilega skreytt óteljandi skópörum, hljómsveitin í miklu stuði og tónlistin fjörug, og síðast en ekki var veðrið afbragð. Eftir að himnarnir grétu sáran um tíma fyrr um daginn var loftið tært, lognið var á heimavelli og sólin lét sjá sig.

Hljómsveitinni var stillt upp fyrir utan veitingastaðinn Backpackers og var það vel til fundið. Leikinn hófu söngvarinn og gítarleikarinn Magni Ásgeirsson og þrír félagar úr Hvanndalsbræðrum, Sumarliði Helgason, Arnar Tryggvason og Valur Freyr Halldórsson. Eftir að strákarnir höfðu „hitað upp“ í góða stund bættist söngkonan Erna Hrönn Ólafsdóttir í hópinn; flugi að sunnan seinkaði þannig að akureyrski söngfuglinn sem þar býr mætti aðeins seinna en áætlað var en það kom ekki að sök. Þegar Erna hóf upp raust sína var skipt í næsta gír og augljóst að viðstaddir kunnu vel að meta það sem boðið var uppá.
Listagyðjan er sem sagt mætt til bæjarins, Listasumar stendur til 18. júlí en hvort veðurfræðingar bjóða upp á Akureyrarsumar næstu vikur verður að koma í ljós. Sýnishornið í gærkvöldi var gott og ekki annað í stöðunni en vona það besta. Listasumar og sumarsólin færu vel saman.



Sumarliði Helgason, Erna Hrönn Ólafsdóttir og Magni Ásgeirsson.

Arnar Tryggvason lék á hljómborð og Valur Freyr Halldórsson sá um trommuslátt auk þess að syngja.


