Fara í efni
Mannlíf

Haraldur hættir hjá DFFU, Baldvin tekur við

Haraldur Grétarsson mun láta af störfum hjá Evrópuútgerð Samherja Holding ehf. í byrjun apríl næstkomandi. Haraldur hefur gegnt stöðu framkvæmdastjóra Deutsche Fischfang Union (DFFU) í Cuxhaven, einu elsta útgerðarfélagi Þýskalands og setið í stjórnum ýmissa félaga. Ákveðið hefur verið að Baldvin Þorsteinsson taki við starfi Haraldar með aðsetur í Hollandi. Þetta kemur fram á heimasíðu Samherja. Baldvin er sonur Þorsteins Más Baldvinssonar, eins stofnenda Samherja og annars forstjóra fyrirtækisins, og Helgu Steinunnar Guðmundsdóttur, sem situr í stjórn þess. Baldvin er nú einn aðaleigenda Samherja.

Haraldur Grétarsson hefur starfað fyrir Samherja og tengd félög frá 1992. Eftir starfslokin mun hann sinna ráðgjöf fyrir félög tengd Samherja út þetta ár. Haraldur segir að það hafi verið kominn tími á breytingar eftir tæplega þrjá áratugi og stærstan hluta tímans erlendis en hann flutti til Skotlands árið 1998 ásamt Hörpu Ágústsdóttur eiginkonu sinni og börnum þeirra.

Þorsteinn Már Baldvinsson, forstjóri Samherja, segir að Haraldur hafi verið einn af burðarásum í rekstri Samherja Holding um langt skeið. Hann hafi borið ábyrgð á Evrópuútgerð félagsins og um leið því flókna regluverki og þeim viðamiklu samskiptum sem fylgja sjávarútveginum í Evrópu.

Forstöðumaðurinn mælti með Haraldi

Þorsteinn Már segist muna vel eftir því þegar hann réð Harald. „Ég hringdi í forstöðumann Sjávarútvegsdeildar Háskólans á Akureyri á sínum tíma þegar skólaárinu var að ljúka því mig vantaði mann til að skoða tölvukerfin hjá mér. Forstöðumaðurinn mælti með Haraldi. Ég þurfti fyrst að vita hvort hann kynni eitthvað til verka og setti hann því á vélaverkstæðið hjá okkur. Þegar hann var búinn að sanna sig þar þá fór hann og skoðaði tölvukerfin með mér, sem við höfðum báðir jafn lítið vit á. Við fundum fljótt út að það þyrfti ekkert að gera við þau þannig að Haraldur endaði sumarið á því að fara út á sjó. Það var mjög hollt fyrir borgarbarn úr Fossvoginum. Árið eftir mætti hann til vinnu, tók síðan lokaverkefni sitt hjá Samherja og hefur unnið fyrir okkur síðan. Hefur samstarf okkar verið bæði farsælt og lærdómsríkt,“ segir Þorsteinn Már.

  • Á myndinni eru hjónin Haraldur Grétarsson og Harpa Ágústsdóttir.

Nánar á heimasíðu Samherja