Fara í efni
Fréttir

Birnir Snær Ingason sagður á leið í KA

Birnir Snær Ingason í leik gegn KA á Greifavellinum sumarið 2022, ásamt KA-mönnunum Hrannari Birni Steingrímssyni og Andra Fannari Stefánssyni. Mynd: Skapti Hallgrímsson
Knattspyrnumaðurinn Birnir Snær Ingason, leikmaður Halmstad í Svíþjóð, er sagður á leið til KA. Vefsíðan Fótbolti.net kveðst hafa heimildir fyrir því og sömuleiðis Kristján Óli Sigurðsson í hlaðvarppinu Þungavigtinni.

Birnir, sem er 28 ára sóknarsinnaður leikmaður, kemur frá sænska liðinu Halmstad þar sem hefur lítið fengið að spila síðustu mánuði að sögn Fótbolta.net. Hann varð Íslands- og bikarmeistari með Víkingi árið 2023 og var þá besti leikmaður Bestu deildarinnar.
 
Fótbolti.net segir að KA fái leikmanninn lánaðan frá Halmstad og að hann „gæti náð leik KA gegn ÍA á laugardag og í kjölfarið á KA svo leik gegn Silkeborg í 2. umferð forkeppninnar í Sambandsdeildinni,“ segir Fótbolti.net og nefnir að Birnir er samningsbundinn sænska félaginu út tímabilið 2026.
 
Akureyri.net hefur ekki náð sambandi við forráðamenn KA í morgun til að fá tíðindin staðfest.