Mikil spenna – Birnir Snær í hóp hjá KA í dag

Birnir Snær Ingason er í leikmannahópi KA í dag þegar liðið tekur á móti ÍA í gríðarlega mikilvægum botnslag í Bestu deildinni, efstu deild Íslandsmótsins í knattspyrnu. Birnir Snær er 28 ára vængmaður, sem verið hefur á mála hjá Halmstad í Svíþjóð undanfari misseri. KA gekk frá samningi við hann seint í fyrrakvöld og Birnir kom til landsins í gær.
Birnir Snær varð Íslands- og bikarmeistari með Víkingi 2023 og var þá kjörinn besti leikmaður Íslandsmótsins en samdi við Halmstad í kjölfarið. KA hefur gengið bölvanlega að skora í sumar, liðið hefur aðeins gert 14 mörk í 15 leikjum (og fengið 31 á sig) en miklar vonir eru bundnar við að Birnir hleypi lífi í sóknarleik liðsins.
- Besta deild karla í knattspyrnu
Greifavöllurinn kl. 16
KA - ÍA
KA og ÍA eru jöfn á botni Bestu deildarinnar með 15 stig, einu á eftir KR. KA-menn teljast í neðsta sæti þar sem þeir eru með örlítið lakari markatölu en Skagamenn. Staða KA er vissulega slæm á pappírnum en vert að minna á að mjög mjótt er á munum; aðeins munar fjórum stigum á KA og Vestra sem er í sjötta sæti, því síðasta í efri hluta deildarinnar, og röð liðanna gæti því breyst fljótt.
Sjö leikir eru eftir af hefðbundinni deildarkeppni – og því 21 stig í pottinum, áður en deildinni verður skipt í tvennt. Í framhaldinu halda sex efstu áfram í baráttu um Íslandsmeistaratitilinn og sex þau neðri berjast um að falla ekki. Í því fimm leikja framhaldi verða því 15 stig í pottinum.
Hallgrímur Mar Steingrímsson með boltann eftir að hann skoraði í síðasta sigri KA á ÍA, á Greifavelli KA sumarið 2022. Til hægri er Steinþór Freyr Þorsteinsson. Mynd: Skapti Hallgrímsson
KA-menn töpuðu illa fyrir FH-ingum í Hafnarfirði í síðustu umferð, 5:0, en Akurnesingar sigruðu KR 1:0 á heimavelli. Skagamenn fögnuðu 3:0 sigri í fyrri viðureigninni við KA í sumar.
KA sigraði ÍA síðast á Íslandsmótinu sumarið 2022; báðir leikir enduðu 3:0 og ÍA féll úr Bestu deildinni um haustið. Daníel Hafsteinsson, Elfar Árni Aðalsteinsson og Jakob Snær Árnason skoruðu á Akranesi í fyrri leiknum en Nökkvi Þeyr Þórisson (2 mörk) og Hallgrímur Mar Steingrímsson í seinni leiknum á Akureyri.
Þórsarinn Lárus Orri Sigurðsson var ráðinn þjálfari ÍA á dögunum eftir að Jón Þór Hauksson var látinn taka pokann sinn og Skagamenn hafa nælt í sex stig af níu mögulegum undir stjórn Lárusar Orra. Unnu fyrst Vestra á Ísafirði, töpuðu síðan heima fyrir Fram og unnu KR á heimavelli á Skaganum sem fyrr segir.
Leikrnir sem KA á eftir í hefðbundinni deildarkeppni:
- Breiðablik - KA
- KA - ÍBV
- Afturelding - KA
- KA - Fram
- Stjarnan - KA
- KA - Vestri