RSS - Myndasafn - 87 – 8.7.2022 – Tilraunastöðin á Eiðum
a1-04066-03 frá Minjasafninu á Akureyri
Ólafur Jónsson ráðunautur og rithöfundur  tók þessa mynd. Ítarlegar upplýsingar bárust: Umrædd mynd sýnir hús Gróðrarstöðvarinnar á Eiðum, sem svo var kölluð, en hét formlega Tilraunastöð Búnaðarsambands Austurlands á Eiðum. Samkvæmt Búkollu (Sveitir og jarðir í Múlaþingi II. bindi) var húsið reist 1909. „Árið 1909 var byggt í Gróðrarstöðinni járnklætt timburhús á tveim hæðum, 10,08x6,30m. Íbúð var uppi og stafngluggi á stofu í suðurenda með góðu útsýni yfir aðgreinda tilraunareiti um ræktunarlandið, vaxna margvíslegum tegundum jarðargróða. Niðri var geymsla fyrir áhöld og kornbundin ásamt aðstöðu og handáhöldum til þreskingar, en neðst fjós (áður verkfærageymsla) í steyptri kjallaraholu. Inngangur af hlaði vestan við og handan þess fallegur garður um 60 m á langveginn vaxinn trjám, runnum og blómum. Norður frá og áfast íbúðarhúsinu var dálítil hlaða steypt og hesthús fyrir átta vinnuhesta stöðvarinnar, en fjárhús við austurjaðar túnsins sunnan til.“