    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 86 – 1.7.2022 – Lindarbrekka
a1-04066-04 frá Minjasafninu á Akureyri
Lindarbrekka í Kelduhverfi; Gamla Lindarbrekka eins og húsið er kallað í dag. Athugið að R vantar í nafnið sem málað er á húsið; það á að vera LindaRbrekka... Í húsinu var á tímabili gistihús og veitingasala auk þess sem selt var eldsneyti enda komu áætlunarbifreiðar á milli Akureyrar og Raufarhafnar þar við. Eftirfarandi upplýsingar bárust einnig: Um 1950 voru Indriði Hannesson og Kristín Jónsdóttir ábúendur í Lindarbrekku. Í baksýn er Framnes en þar var ábúandi Jóhannes Jónsson bróðir Kristínar í Lindarbrekku. Nær Lindarbrekku sést í Kelduneskot og þar var Sigurbjörn Hannesson ábúandi, bróðir Indriða í Lindarbrekku. Í Keldunesi, sem er rétt utan myndsviðsins, bjuggu tvíburabræðurnir Helgi og Sigtryggur, bræður Jóhannesar í Framnesi og Kristínar í Lindarbrekku. – Myndina tók Ólafur Jónsson ráðunautur og rithöfundur.]]></description>