RSS - Myndasafn - 66 – Leirubakki í Landsveit
Albúm 121-51 frá Minjasafninu á Akureyri
Myndin er tekin á bænum Leirubakka í Landsveit. Húsið á myndinni er „gamli bærinn sem búið er að rífa núna, ábúendur á þessum tíma voru Magnús Sigurðsson og Jóhanna Jónsdóttir,“ skrifaði Gunnar Sigurjónsson í skeyti til Akureyri.net. Magnús og Jóhanna voru afi hans og amma.
Stúlkan á myndinni er Jóhanna Sigurjónsdóttir, systir Gunnars. Honum sýndist það og Jóhanna staðfesti að svo sé. Hundurinn á myndinni hét Kópur, segir Jóhanna og bætir við að myndin sé tekin á tímabilinu 1963 til 1965.
Jóhanna segist hafa verið mörg sumur í sveit hjá afa sínum og ömmu á Leirubakka. Móðurbræður hennar áttu hins vegar bílana á myndinni; nær er Willys Overland árgerð 1951, segir Jóhanna, sem notaður var til að fara í réttir í Réttarnesi. „Bekkir voru sitt hvoru megin aftur í og þar var spjallað, sungið og teigaðar guðaveigar, þar smakkaði ég ginger ale í fyrsta sinn – var notað sem bland.“