    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 302 – 21.8. 2026 – Bakki á Siglufirði
m-stae1-17597 frá Minjasafninu á Akureyri
Þetta er húsið Bakki á Siglufirði sem Pétur J. Thorsteinsson á Bíldudal byggði snemma á síðustu öld, líkast til 1917. Steinsnar frá var reist söltunarstöð, sem einnig var kölluð Bakki. Það mun vera hvíta húsið sem sést í lengst til hægri á þessari mynd; akureyri.net fékk sendar upplýsingar um að Pétur hefði einnig byggt söltunarstöðina á árunum 1916-1919 en heimildum ber ekki saman. Á vef Síldarminjasafns Íslands á Siglufirði segir í grein eftir Benedikt Sigurðsson: „Eitt af fyrirtækjum Óskars Halldórssonar, Hrogn og lýsi h.f., byggði íshúsið á söltunarlóð sinni í Bakka 1925.“ – Óskar, útgerðarmaður og síltarsaltandi (fyrirmyndin að síldargrósseranum Íslandsbersa í Guðsgjafaþulu Halldórs Laxness) leigði húsið á þessari mynd um tíma fyrir starfsemi fyrirtækis síns, skv. grein Benedikts, en síðar voru gerðar  fjórar íbúðir í húsinu og búið í því allt til ársins 1982. Slökkvilið Siglufjarðar fékk þá húsið til æfinga og var það brennt til kaldra kola á æfingu árið 1983. - / m-stae1-17597 frá Minjasafninu á Akureyri]]></description>