    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 298 – 24.7. 2026 – Vallarkirkja
m-stae1-17656 frá Minjasafninu á Akureyri
Vignir Sveinsson sendi ítarlegar og skemmtilegar upplýsingar um myndina. Hann hefur orðið: Fyrir viku var birt mynd af Vallakirkju sem er auðþekkjanleg. Þar fermdist ég fyrir rúmum 60 árum. Ég tel mig vita með nokkurri vissu um nöfn þriggja af fjórum sem standa á tröppum hennar. Lengst til vinstri mun vera Sveinbjörn Jónsson (Þórðarsonar frá Hnjúki í Skíðadal), lengst af kenndur við Ofnasmiðjuna. Við hlið hans álít ég að sé Ágúst Jónsson (húsasmíðameistari og steinasafnari á Akureyri) yngsti bróðir hans, og sá þriðji f.v. er án efa Valdimar V. Snævarr, skólastjóri og sálmaskáld. Ég man eftir þeim bræðrunum í heimsókn að Þverá í Skíðadal, bernskuheimili mínu. Þar voru þeir að heilsa upp á frændfólk sitt því móðir mín, Þórdís Rögnvaldsdóttir og þeir voru bræðrabörn. Þetta mun hafa verið um 1960. Ég var þá um 10 ára aldurinn og mér eru þessir hávöxnu, grönnu og fínt klæddu frændur okkar minnisstæðir. Ekki er ólíklegt að myndin tekin í þeirri ferð en það gæti líka hafa verið fyrr, a.m.k. veit ég að Sveinbjörn kom líka í dalinn 1950 því til eru myndir sem hann tók í þeirri ferð. Held þó að Ágúst hafi ekki verið með honum þá. Valdimar lést 1961, hafði þá síðustu tæplega tvo áratugina átt heimili sitt á Völlum hjá syni sínum sr. Stefáni og konu hans Jónu sem Sveinbjörn og Ágúst voru einnig skyldir (að öðrum og þriðja). Um nafn mannsins lengst til hægri veit ég ekki. / m-stae1-17656 frá Minjasafninu á Akureyri]]></description>