    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 285 – 24.4. 2026 – Grísará 2?
m-stae1-17289 frá Minjasafninu á Akureyri
Ein mjög góð ábending barst um þessa mynd, svohljóðandi, frá Katrínu Úlfarsdóttur grunnskólakennara í Hrafnagilsskóla og leiðsögumanni:
Húsið á myndinni er mjög líkt húsi sem núna stendur á Grísará, við hliðina á Jólagarðinum. Það var upphaflega reist á Espigrund í Hrafnagilshreppi, árið 1930 að því er ég best veit. Árið 1967 keyptu foreldrar mínir húsið sem þá hafði staðið autt um árabil og fluttu það að Grísará og heitir það síðan Grísará 2.
Það sést ekki vel á myndinni hvað er í bakgrunninum en á Sarpinum er að finna mynd þar sem sést í Espigrund og þar er einhver runnagróður hægra megin eins og á myndinni. Á neðstu hæðinni var inngangurinn og þar var líka eldhúsið. Þegar húsið var flutt var neðsta hæðin opnuð þannig að það var hægt að bakka vagni undir húsið og veggirnir voru síðan brotnir niður þangað til húsið stóð á vagninum. / m-stae1-17289 frá Minjasafninu á Akureyri]]></description>