    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 261 – 7.11. 2025 – Laugar í Reykjadal
m-stae-5-0743  frá Minjasafninu á Akureyri
Ingvar Þóroddsson sendi ítarlegar og skemmtilegar upplýsingar eftir að þessi mynd birtist. Hann segir: Mynd þessi er tekin út um glugga á þriðju hæð þess húss er hýst hefur skólastarf á Laugum í Reykjadal í 100 ár. Horft til suðurs, yfir tjörnina og suður Reykjadal. Gæti verið tekin um 1960. Býlið næst til hægri á myndinni er Kárhóll sem að Ingi Tryggvason frá Laugabóli í Reykjadal og Anna Þorsteinsdóttir frá Götu á Árskógsströnd stofnuðu 1954. Það sér aðeins í Laugaból ef farið er þvert yfir myndina frá Kárhóli. Ofan og innan við Kárhól eru Daðastaðir og Lyngbrekka þar fyrir neðan. Innst hægra megin eru Narfastaðir en þar rak fyrrnefndur Ingi ferðaþjónustu til margra ára eftir fráfall Önnu. Ingi var kennari á Laugum, sá lengi um Sparisjóð Reykdæla, og var öflugur félagsmálamaður á landsvísu. Ofar á myndinni vinstra megin er Hjalli. Bændur í Laugafelli greinilega búnir að heyja túnið sunnan við tjörnina. Hver á hinn fagra jeppa sem er þarna á ferð veit ég ekki en í dag væri hann inni í íþróttahúsi skólans ef hann væri staddur á sama stað. / m-stae-5-0743  frá Minjasafninu á Akureyri]]></description>