    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 260 – 31.10. 2025 – Hlíð í Skíðadal
m-stae5-1590 frá Minjasafninu á Akureyri
Þetta er bærinn Hlíð í Skíðadal. Vignir Sveinsson sendi eftirfarandi upplýsingar: „Þetta umhverfi þekki ég vel, enda fæddur og uppalinn á Þverá sem er beint á móti Hlíð. Myndin hefur verið tekin annað hvort 1957 eða 1958, líklega síðsumars 1957. Þarna er fjós í byggingu en aðeins búið að reisa hlöðuna sem er á bakvið fjósið. Byggingarár fjóssins er skráð 1958 í fasteignamati. Á myndinni sést einnig stór malarhaugur sem ýtt hefur verið upp úr eyrunum vestan ár, líklega vegna þessarar byggingar og/eða vegna íbúðarhúss sem byggt var á Þverá á sama tíma. Íbúðarhúsið þar var hlaðið úr r-steinum sem voru steyptir um haustið 1957 en húsið ekki reist fyrr en 1958 og þá jafnframt steyptar plötur. Mögulega gæti þessi malarbingur einnig hafa verið til ofaníburðar í þjóðveginn í dalnum.“  / m-stae5-1590 frá Minjasafninu á Akureyri]]></description>