    <language>is</language>
RSS - Myndasafn - 17 – Anna Sigríður og Hlín
17 - Anna Sigríður og Hlín
17 – Lesandi sendi eftirfarandi: Myndin er tekin á horni Glerárgötu og Gránufélagsgötu á Akureyri, horft er austur Gránufélagsgötu yfir Glerárgötu. Stúlkan sem situr sparksleðann er Anna Sigríður Eggertsdóttir Guðmundar byggingameistara frá Siglunesi sem byggði Gránufélagsgötu 11 og bjó þar ásamt Stefaníu Sigurðardóttur frá Kambhóli og 9 börnum. Stúlkan sem stendur er Hlín Jónsdóttir  Jónatanssonar járnsmiðs sem bjó í Glerárgötu 3 ásamt konu sinni Þórunni Friðjónssyni frá Sandi. Anna var fædd 1910 og Hlín 1911 og voru þær vinkonur og nábúar. Tvö húsin sem er nær eru farin í dag og húsið sem er næst var kallað Guðmundarhús en þar átti heima Guðmundur og fjölskylda, einn sonur þeirra er Jón Oddgeir Guðmundsson sem í dag býr í og á Glerárgötu 1. Hann á líka „Litlu búðina“ sem er þar í bakhúsi og selur hann þar t.d. bílabænina. Næsta hús þarna var kallað Strýta og Ferðafélagið fékk það hús og flutti að ég held inn í Herðubreiðalindir og er þetta hús skáli þar í dag. Húsið sem sér aðeins í gaflinn á er Gránufélagsgata 19. -  Minjasafnið á Akureyri / Mynd 080-030]]></description>