RSS - Myndasafn - 131 – 12.5.2023 – Laugarvatn
m-stae-1-5498 frá Minjasafninu á Akureyri
Myndin er frá Laugarvatni. Sigurður Kristinsson, prófessor við Háskólann á Akureyri, er alinn þar upp og sendi m.a. eftirfarandi: Myndin er tekin ofan úr fjallshlíðinni ofan við lundinn í kringum styttuna af Jónasi frá Hriflu, sem horfir niður eftir grasrennunni í skóginum á framhlið héraðsskólabyggingarinnar frá 1928, en Jónas var dóms- og kennslumálaráðherra 1927-1932. Til vinstri með sléttu þaki er viðbyggingin sem í var íþróttasalur og sundlaug, byggt 1942 en rifið á 10. áratugnum. Niðri á sléttlendinu fyrir aftan héraðsskólann er skólastjórabústaður Íþróttakennaraskólans, sem ég man eftir að hafa gengið undir nafninu Fuglinn. Hægra megin á myndinni er fyrst einbýlishúsið Garður, sem var lengi skólastjórabústaður Héraðsskólans en síðar bústaður skólameistara Menntaskólans. Lengst til hægri er svo elsti hluti húss Menntaskólans að Laugarvatni, byggður um og upp úr 1950. Við þessa byggingu var byggður turn á árunum 1959-60 þannig að myndin er tekin fyrir þann tíma. Myndin getur hins vegar ekki verið eldri en frá 1957 því að þá fyrst var lokið endurbyggingu Héraðsskólahússins eftir að burstirnar brunnu 1947.