Fara í efni
Alþingiskosningar

Endurheimtum réttindin!

Þessi ríkistjórn hefur sett staðfest heimsmet í skerðingum á ellilífeyrisþega og öryrkja. Þetta hefur komið fram í rannsóknum prófessors Stefáns Ólafssonar fyrir stéttarfélagið Eflingu.

Hvergi í heiminum er jafn grimmilegum skerðingum beitt eins og á Íslandi. Þessu fylgir eitthvað harðasta og smásmugulegasta eftirlitskerfi sem um getur. Því mætti líkja við smáriðna loðnunót á meðan eftirlitskerfi hinna ríku mætti líkja við botnvörpu með tuttugu metra möskvastærð.

Fyrir 1991 voru lægstu laun skattfrjáls og eftirlaun voru skerðingarfrjáls. Við sósíalistar viljum endurheimta þau réttindi sem láglaunafólk, aldraðir og öryrkjar höfðu fyrir 1991 þegar nýfrjálshyggjunni var sleppt lausri í samfélaginu okkar.

Auðmannadekur ríkistjórnarinnar

Þetta athæfi endurspeglast í uppstyttulausu auðmannadekri.

Núverandi ríkistjórn hefur lækkað veiðigjöld úr tæpum tólf þúsund miljónum í tæplega fimm þúsund. Ríkistjórnin, í okkar, nafni greiðir fyrir margvíslega þjónustu við greifanna þannig að nettó er þjóðin að fá innan við 100 miljónir í veiðigjald af auðlindinni.

Ríkistjórnin fær svipað út úr því að leggja skatta á fólk sem reykir eins og veiðigjald á sægreifanna aflar.

Það eru ekki lengur til lýsingarorð til að lýsa þessari stjórnarstefnu.

Þessi spegilmynd er dæmi um viðhorf og hún er dæmi um þá frumstæðu hugmyndafræði að samfélagið hagnist á því að sem mestur auður safnist á fár hendur og hinar stóru stéttir almennra launamanna, bótaþega og öryrkja þurfi að standa undir sífellt hrörnandi velferðarkerfi.

Sjálfstæðisflokkurinn hefur setið við völd í 26 ár af síðustu 30 árum – Framsókn hefur setið með honum í tæp 25 ár. Þetta bákn er þeirra verk. Forystufólk VG hefur svo bæst í hópinn af miklum dugnaði og þessir þrír flokkar ætla sér að halda hópinn og eru ákveðnir í að keyra áfram þessa stefnu.

Ykkar vopn gegn þessari eyðandi stjórnarstefnu er Sósíalistaflokkurinn,

Við viljum að:

  • Allar skerðingar á ellilífeyri frá Tryggingastofnun ríkisins verði afnumdar. Þau fáu tilfelli auðmanna sem þurfa í raun ekki á ellilífeyri að halda munu endurgreiða hann í gegnum hátekjuskatt.
  • Upphæð ellilífeyris muni ávallt fylgja meðal lágmarkslaunum í landinu,
  • Greiðslur úr lífeyrissjóðum verði sveigjanlegar.
  • Húsnæðismál eldri borgara verði stokkuð upp. Þetta verði tryggt með öflugri uppbyggingu félagslegs húsnæðis fyrir eldri borgara í byggðakjörnum sem eru með alhliða þjónustu fyrir alla sem þar búa. Eins verði gert stór átak í byggingu hjúkrunarheimila fyrir þá sem þurfa á slíkri þjónustu að halda.

Sósíalistar vilja samfélag sem er byggt upp á samvinnu fólks, vinskap og trausti, en ekki á samkeppni og braski þar sem ótti við framtíðina bíður við hvert horn og áhyggjur af ævikvöldinu eru allsráðandi.

Samhyggja í stað sérhyggju. XJ á kjördag.

Haraldur Ingi Haraldsson er í 1. sæti á lista Sósíalistaflokksins í Norðausturkjördæmi fyrir alþingiskosningarnar 25. september.

Lágmarksbirgðir verði alltaf til í landinu

Skapti Hallgrímsson skrifar
10. nóvember 2022 | kl. 13:40

Mikil vonbrigði með ráðherraskipan

Skapti Hallgrímsson skrifar
30. nóvember 2021 | kl. 14:00

Enginn ráðherra úr Norðausturkjördæmi

Skapti Hallgrímsson skrifar
28. nóvember 2021 | kl. 13:18

Erindi Birgis í HA: Búið að kjósa og hvað nú?

Skapti Hallgrímsson skrifar
29. september 2021 | kl. 11:20

Kosningaþátttaka á Akureyri var 79,33%

Skapti Hallgrímsson skrifar
27. september 2021 | kl. 11:26

Þjóðin hafnar öfgum – vill stöðugleika

Skapti Hallgrímsson skrifar
26. september 2021 | kl. 22:50