Laugardaginn 16. janúar verður opnuð yfirlitssýning á verkum hollenska myndlistarmannsins Jorisar Rademaker (f. 1958) og mun Listasafnið á Akureyri af því tilefni gefa út tæplega 90 síðna bók með ítarlegri umfjöllun um feril hans og list eftir Úlfhildi Dagsdóttur bókmenntafræðing.
Joris hefur verið búsettur á Akureyri síðan 1991 og verið ein helsta sprautan í menningarlífi bæjarins, rekið þar grasrótarsalinn Gallerí+ í yfir áratug ásamt konu sinni, Guðrúnu Pálínu, og sinnt myndlistarkennslu um langt árabil. Myndlist Jorisar spannar ólíkar stefnur og rífur skörð í þá múra sem eitt sinn stóðu fyrir kynslóðabil andstæðra fylkinga. Hann vinnur með hugsanaflæði, bæði tvívítt og þrívítt, og styðst við fundna hluti og látlausan, gjarnan lífrænan, efnivið eins og tré, pappír, tau, blek og þrykk. Ákveðin stef eru könnuð í mörgum mismunandi útfærslum og byggja á formrænni einföldun þar sem möguleikar skynjunar og alls konar skynvilluleikir ráða ferðinni.
Sýningin stendur til 7. mars 2010.



