Hinir fluggáfuðu Ljótu Hálfvitar frá Húsavík sem hafa farið sigurför um alla helstu spurningaþætti sem finna má á sjónvarpsskjáum landsmanna, ætla að heiðra Akureyringa með nærveru sinni tvö kvöld í byrjun október. Þá munu þeir leika á Græna hattinum. Það hefur alltaf verið fullt á tónleikum Ljótu hálfvitanna og því dugar ekkert minna en tvö kvöld. Tónleikar hefjast klukkan 22.00 bæði kvöldin en húsið opnað kl. 21.00.
Tónleikar Ljótu Hálfvitanna á Akureyri:
2. október klukkan 22:00
3. október klukkan 22:00
Nánar má lesa um þessa mögnuðu sveit á vefsíðunni www.ljotuhalfvitarnir.is en þar má einnig hala niður nokkrum lögum með sveitinni.



