Föstudaginn 26. júní kl. 22:00 verður haldinn RUNDFUNK kvöldlestur ásamt dj Mikka svanga í Populus Tremula.
Eigið efni lesa Jóna Hlíf, Gunnar M. G. og Þórgnýr Inguson en einnig koma fram Ingimar Björn Davíðsson og Michael Boudreau sem munu fara með fornar rímur í bland við nútímakveðskap úr Vesturheimi.
Húsið verður opnað kl. 21:30 | Aðgangur ókeypis | Malpokar leyfðir
Þessi dagskrá markar lok starfsársins hjá Populus tremula sem nú tekur sér verðskuldað sumarleyfi fram að Akureyrarvöku í lok ágúst.




