Einar Þór sigraði Greifatorfæruna

Skrifað 30. maí 2009 klukkan 18:42 | Örlygur Hnefill | Fréttir, VefTV | Senda á Facebook |
Ökuþórinn Einar Þór í drulluspyrnu um árið

Ökuþórinn Einar Þór í drulluspyrnu um árið

Einar Þór Gunnlaugsson sigraði Greifatorfæruna sem fór fram á akstursíþróttasvæði Bílaklúbbs Akureyrar í dag. Einar var jafnframt stigahæsti maður dagsins og hlýtur því titilinn Greifinn 2009. Leo Viðar Björnsson hafnaði í öðru sæti en Hafsteinn Þorvaldsson var í þriðja, en hnn velti bíl sínum hressilega eins og sjá má í meðfylgjandi myndbandi. Björgvin Ólafsson hjá Bílaklúbbi Akureyrar segir keppnirnar hafa gengið vel. “Þetta hefur gengið framar vonum og aðsóknin var frábær. Það var mikið um veltur og þessvegna drógst dagskráin en þetta var samt rosalega gaman,” sagði Björgvin í samtali við Akureyri.net síðdegis.

Í flokki götubíla var Steingrímur Bjarnason í fyrsta sæti, Haukur Þorvaldsson í öðru og Hlynur B. Sigurðsson í þriðja.

Get the Flash Player to see the wordTube Media Player.

Lokað fyrir athugasemdir.