Samræmd sóknaráætlun fyrir landsbyggðina var meðal þess sem ríkisstjórnin ræddi á fundi sínum á Akureyri í dag. Fundurinn á Akureyri var í senn fyrsti starfsfundur nýrrar ríkisstjórnar og fyrsti fundur ríkisstjórnar utan Reykjavíkur ef frá eru taldir hátíðarfundir á Þingvöllum. Að fundi loknum ræddu ráðherrar við blaðamenn á fundi í Háskólanum á Akureyri. Þar sagðist Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráðherra gera sér vonir um að koma lögum um persónukjör, þjóðaratkvæðagreiðslur og ráðgefandi stjórnlagaþing í gegnum þingið.
“Þetta lá þannig á síðasta þingi að fjórir af fimm flokkum voru sammála um að koma á stjórnlagaþingi. Sjálfstæðisflokkurinn var einn á móti því,” segir forsætisráðherra.



